ENSK3AB05 - Afrísk-amerískar bókmenntir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3AC05
Í áfanganum verður áfram unnið með þá hæfni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum í ensku og lögð áhersla á alla færniþætti tungumálanáms. Einkum verður þó lögð áhersla á að nemendur öðlist hæfni í að tjá sig á gagnrýninn hátt í ræðu og riti um viðfangsefnið. Meginmarkmið áfangans er að nemendur kynnist sögu, menningu og réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum með lestri bókmenntaverka, svo sem skáldsagna, ævisagna, æviágripa, leikrita, smásagna, greina, ljóða og dægurtexta eftir bandaríska höfunda af afrískum uppruna. Í tengslum við lesturinn munu nemendur rýna í og vinna með heimildamyndir og/eða kvikmyndir um ævi og störf þekktra svartra bandaríkjamannna. Einnig verður horft á kvikmyndaaðlaganir að bókmenntaverkum þeirra og rýnt í tónlist svartra, til að mynda blues, jazz, soul, pop, reggae og rapp. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða, hugtökum og hugmyndafræði sem einkenna menningu svartra í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • sögu afrískra ameríkana í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • menningu svartra í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • áhrifum sögu, menningar og réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum á fjölmenningarlegt samfélag Bandaríkjanna
  • áhrifum réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum á réttindabaráttu annarra minnihlutahópa í alþjóðasamfélaginu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sér til fræðslu og ánægju texta sem tengjast sögu, menningu og réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • gera grein fyrir viðfangsefnum sínum á lipurri og hnökralausri ensku
  • kafa dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni og leita fanga víðar en áður
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og geta dregið ályktanir
  • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um viðfangsefnið

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • öðlast heildaryfirsýn yfir sögu, menningu og réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum fyrr og nú
  • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum um viðfangsefnið
  • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum um viðfangsefnið
  • geta tjáð tilfinningar, notað hugarflug og beitt stílbrögðum í túlkun sinni á viðfangsefninu
  • skrifa texta með röksemdafærslu um viðfangsefnið þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
Nánari upplýsingar á námskrá.is