ENSK2AM05 - Fræðilegur orðaforði og Bandaríkin - 1. áfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í þessum byrjunaráfanga í ensku er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Norður-Ameríku, fjallað verður um bandarískt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og ritunarverkefnum. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
  • bandarísku samfélagi
  • rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. inngangi með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
  • tjá sig skýrt og hnökralaust munnlega um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
  • átta sig á helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
  • átta sig á ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
  • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
  • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is