ENSK3AC05 - Akademískur orðaforði og rauntextar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK2UK05
Eitt helsta markmið áfangans er krefjandi akademískur orðaforði í takt við það sem nemendur geta átt von á á háskólastigi. Áhersla er lögð á að nemendur vinni með fjölbreyttari og flóknari texta en áður, bæði texta í kennslubók og rauntexta. Þeir byggja ofan á almennan orðaforða vísinda og fræða sem þeir hafa tileinkað sér á fyrsta námsári. Nemendur kynnast bókmenntum rituðum á ensku. Þeir lesa nýútkomna skáldsögu að eigin vali, skrifa um hana fræðilega ritrýni og fjalla um hana í málstofu. Nemendur þurfa að tjá hugsun sína skýrt og rökstyðja skoðanir sínar, jafnt í rituðu sem mæltu máli. Nemendur þjálfa jafnframt hlustun og þurfa að sýna fram á skilning á töluðu fræðimáli. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
  • mismunandi gerðum fræðitexta af ólíkum sviðum
  • • bókmenntum rituðum á ensku

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
  • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
  • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs og menningarlegs eðlis
  • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
  • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita málinu af lipurð og kunnáttu og geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum
  • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
  • lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem þeir hafa kynnt sér
  • skrifa texta sem uppfyllir akademískar kröfur um orðaforða og uppbyggingu
Nánari upplýsingar á námskrá.is