HEIL2HH01 - Heilsulæsi 3

Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Forkröfur: HEIL1HL01
Í áfanganum er lögð áhersla á undirstöðuþjálfun fyrir heildræna líkams- og heilsurækt. Farið er yfir líffræðilegar forsendur þjálfunar og fyrirbyggjandi aðgerðir og meðferð algengra meiðsla sem tengjast hreyfingu og mikilvægi svefns og slökunar. Verkefnavinna byggist á að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og líkama. Námið fer fram í staðkennslu, vendikennslu og verkefnum utan skóla.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi undirstöðuþjálfunar fyrir líkama og heilsu
  • fjölbreyttum þjálfunaraðferðum undirstöðuþjálfunar
  • aðferðum til að mæla og meta þjálfunarástand
  • helstu reglum og öryggisatriðum varðandi líkamlegt álag

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipuleggja undirstöðuþjálfun fyrir frekari líkams- og heilsurækt
  • geta útskýrt þjálfunaráhrif á líffærakerfi líkamans
  • þjálfa líkamsþrek á markvissan og fjölbreyttan hátt
  • taka þátt í hreyfingu sem eykur líkur á jákvæðu viðhorfi til líkams- og heilsuræktar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leysa af hendi verkefni sem snúa að undirbúningi að eigin þjálfun
  • leysa af hendi verkefni sem eru uppbyggjandi og hvetjandi fyrir almenna líkams- og heilsurækt
  • geta útskýrt uppbyggingu og starfsemi líkamans
  • takast á við áskoranir daglegs lífs á heilbrigðan hátt
  • fyrirbyggja meiðsli og álagssjúkdóma
Nánari upplýsingar á námskrá.is