ENSK3JA05 - Jane Austin Then and Now

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3AC05
Í áfanganum verða lesin skáldverk eftir Jane Austen og fjallað um þau út frá bókmenntum og menningu. Nemendur lesa skáldsögur eftir höfundinn, auk þess að horfa á bíómyndir og þætti sem byggð eru á verkum Austen. Farið verður yfir ævi og áhrif höfundar og lesnar verða fræðigreinar sem fjalla um skáldsögur hennar. Verk Jane Austen eru skoðuð út frá vinsælli nútímamenningu, feminisma og fleiri sjónarhornum. Velt er upp spurningum um hvers vegna verk Austen séu enn eins vinsæl og raun ber vitni og skoðaðar ólíkar endurgerðir og afbakanir á verkum höfundarins.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einkennum og stíl Jane Austen
  • bakgrunni, ævi og áhrifum Jane Austen
  • breyttum reynsluheimi kvenna frá 19. öld til dagsins í dag
  • gagnrýni og umfjöllun um verk Jane Austen

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja skáldsögur Jane Austen
  • fjalla um og greina skáldsögur Austen í umræðum og kynningum
  • horfa á, bera saman og greina kvikmyndir og þætti út frá skáldsögum
  • skrifa formlega og óformlega texta á ensku um viðfangsefnin
  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við efni áfangans

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • dýpka lesskilning sinn á ensku
  • mynda sér skoðanir og rökstutt þær í umræðum, kynningum og ritgerðum
  • hafa yfirsýn yfir helstu samfélagsbreytingar á högum kvenna frá tímum Jane Austen til dagsins í dag
  • miðla á skapandi hátt hugmyndum og skoðunum á verkum Jane Austen
Nánari upplýsingar á námskrá.is