UPPE2UM05 - Uppeldis- og menntunarfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLV1SJ06
Í áfanganum er fjallað um uppeldis- og menntunarfræði sem fræðigrein, rætur hennar, sögu og hagnýtingu. Lögð er áhersla á að efla skilning á mikilvægi uppeldis og menntunar og að nemendur öðlist hæfni til að takast á við störf sem tengjast uppeldi og menntun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mótunaraðilum uppeldis og menntunar í samfélaginu
  • sérstöðu þeirra aðila og stofnana sem eru mótandi fyrir uppeldi og hvað þeir eiga sameiginlegt
  • kenningum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
  • margvíslegum könnunum á uppeldi og menntun
  • mikilvægi þeirra sem starfa með börnum og unglingum
  • aðalatriðum í sögu uppeldis og menntunar
  • mikilvægi siðareglna þeirra sem starfa með börnum og unglingum og siðfræði þeirra sem umgangast þau
  • störfum leikskólakennara og annarra starfsmanna í leikskólum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • túlka margvíslegar kannanir tengdar uppeldi og menntun
  • greina á milli tilfinningalegs mats og faglegs mats á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
  • skoða innra starf leikskóla og setja fram til kynningar
  • beita einföldum kenningum í uppeldis- og menntunarfræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja sjálfur gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs í uppeldi barna
  • geta hagnýtt sér kenningar í raunhæfum verkefnum
  • meta siðferðileg álitamál í tengslum við uppeldi og menntun
  • afla sér heimilda eftir fjölbreytilegum leiðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is