ÍSLE3RS05 - Ritlist – skapandi skrif

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2MN05
Í áfanganum munu nemendur kynna sér einkenni mismunandi tegunda texta og þjálfa sig í ritun þeirra. Nemendur vinna fjölbreytt skrifleg verkefni og rýna í eigin verk og annarra. Lögð er áhersla á að efla sjálfstraust og sköpunargáfu nemenda við ritun og frágang mismunandi texta.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einkennum mismunandi tegunda ritsmíða
  • hvernig ná má fram ólíkum blæbrigðum/hughrifum í ritsmíðum
  • helstu hefðum og venjum í ljóðagerð, jafnt hefðbundinni sem óbundinni
  • hlutverki höfundar í ritverkum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • semja og rita eigin texta; sögur, ljóð, greinar eða hvaðeina sem hugur hans stendur til
  • nota fjölbreytt og vandað mál við ritsmíðar
  • velja sér málsnið og stíl í samræmi við viðfangsefni/form

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta trúverðugleika og gæði ritsmíða
  • greina og upplifa ólík hughrif í skáldskap
  • mynda sér skoðun á ætlan höfunda ritverka.
Nánari upplýsingar á námskrá.is