KVIK1KV05 - Kvikmyndir frá ýmsum löndum

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum verða skoðaðar kvikmyndir á mismunandi tungumálum út frá fyrirfram gefnu þema. Skoðað er hvernig menningarmunur birtist í kvikmyndum frá ólíkum menningarsvæðum og er athyglinni m.a. beint að staðalmyndum, klisjum og tabúum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • menningarmun ýmissa landa út frá tilteknu þema í kvikmyndum
  • mismunandi túlkunarleiðum þjóða til að koma á framfæri ákveðnum boðskap í kvikmyndum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • túlka og gagnrýna kvikmyndir út frá tilteknu þema
  • hlusta á og öðlast frekari skilning á ólíkum tungumálum með tiltekið þema í forgrunni

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera saman hvernig tiltekið þema birtist í kvikmyndum frá ýmsum löndum
  • átta sig á ólíku tungutaki ýmissa þjóða þar sem tiltekið þema er haft til hliðsjónar
  • lesa í ólíka menningu þjóða hvað varðar tiltekið viðfangsefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is