TÖLF2GF05 - Grunnáfangi í forritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Grunnáfangi í forritun þar sem nemendur fá undirstöðuþjálfun í æðra forritunarmáli. Fjallað er um helstu þætti í forritun, eins og inntak, úttak, breytur, tög, fylki, segð og gildisveitingar, forritun með skilyrðum, lykkjum og föllum. Í áfanganum er farið yfir grunn orðaforða forritunarmálsins og hugtök sem notuð eru og nemendur þjálfaðir í að finna lausnaraðferðir til að leysa verkefni. Nemendur læra að skipta forriti niður í einingar til að einfalda forritunina.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum forritunarmála
  • uppbyggingu eins æðra forritunarmáls
  • helstu grunneiningum forritunarmáls
  • gildi þróunarumhverfis til að þýða og þróa forrit

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skrifa einföld keyrsluforrit
  • nota gagnaskipanir eins og skilyrði, lykkjur og föll
  • nota samþætt þróunarumhverfi til að þýða forrit
  • skissa upp hugmynd að forritunarverkefni
  • lesa kóða
  • aflúsa, breyta og prófa forrit

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leiðrétta og endurbæta forrit
  • semja forrit til að leysa einföld verkefni
  • brjóta forrit upp í smærri einingar sem síðan vinna saman
  • beita gagnrýni og skapandi hugsun við lausnir verkefna
  • skilja og beita einföldum röksemdum
Nánari upplýsingar á námskrá.is