UPPE3ME05 - Menntavísindi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Einn FÉL, SÁL eða UPP áfangi 2. þrepi. Má taka samhliða á 2. þrepi.
Uppeldi og menntavísindi styðjast við margvíslegar stefnur, kenningar og rannsóknir á því sviði og tekur breytingum í takt við samfélagið. Í áfanganum verður meðal annars fjallað um ýmsar nútímastefnur, strauma og kenningar í uppeldis- og menntamálum sem komið hafa fram á seinni hluta síðustu aldar og fram á daginn í dag. Sem dæmi má nefna þjóðfélagslegan bakgrunn nemenda og jafnrétti til náms (e. pedagogic discourse-Bernstein); viðhald félagslegrar mismununar í menntakerfi og menningu (e. habitus-Borudieu); hvernig hægt er að efla trú á eigin getu í námi, íþróttum og starfi (e. self-efficacy-Bandura); útinámskennsla (e. forest schools) o.fl. Fjallað er sérstaklega um uppbyggingarstefnuna (e. restitution) eða Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Aðalnámskrá er birtingarform pólitískrar stefnumótunar í menntun á öllum skólastigum. Þar er meðal annars kveðið á um hvernig koma á til móts við ólíkar þarfir nemenda, gæta jafnréttis o.fl. Í því samhengi verður fjallað um bráðgera nemendur, nemendur sem þurfa meiri stuðning í námi og fjölmenningarleg kennsla fær sérstaka umfjöllun í áfanganum. Hvítbókin - umbætur í menntun fjallar um núverandi stöðu íslenska menntakerfisins þar sem mesti þunginn er lagður á þau meginmarkmið að bæta árangur í lestri og námsframvindu í framhaldsskólum. Nemendur kynna sér aðferðir við lestrarkennslu við upphaf skólagöngu í völdum grunnskólum og bera saman við eigið lestrarnám og lestrarkunnáttu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kenningum og nútímastefnum á sviði menntunar og uppeldis
  • rannsóknum á sviði menntavísinda
  • íslenska menntakerfinu og pólitískri stefnumótun í menntamálum
  • einstaklingsmun nemenda og jafnrétti
  • aðferðum við lestrarkennslu í skólum
  • hvernig hægt er að að efla sig sem námsmann/-konu
  • sérstöðu menntavísinda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla upplýsinga er tengjast kenningum og rannsóknum á menntun og setja í fræðilegt samhengi
  • nýta fræðilegan/vísindalegan texta um menntun á íslensku og ensku
  • afla upplýsinga um uppeldi og menntun og nýta þær í hagnýtum verkefnum
  • beita orðræðunni um menntun á ýmis viðfangsefni
  • miðla fræðilegu efni á sviði menntavísinda í ræðu og riti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa úr rannsóknargögnum og leggja mat á kenningar og rannsóknir á menntun og uppeldi
  • taka þátt í rökræðum um uppeldis- og menntunarfræðileg málefni
  • leggja mat á helstu einkenni pólitískrar stefnumótunar í menntamálum
  • meta eigin frammistöðu og vinnuframlag sem og annarra á gagnrýninn hátt
  • setja fram þekkingu sína í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar á námskrá.is