HAND1HV05 - Handverk

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Unnið er með grunnvinnsluaðferðir í prjóni og hekli, ekki er þörf á neinni kunnáttu. Kynnt eru tæki og efni sem unnið er með og nemendum er kennt að nota þau við vinnu. Farið er í sköpunarferlið og sögu handverks á Íslandi, kynnt verður Yarn bombing og unnið verk út frá því. Facebook, Instagram, Pinterest, Youtube o.fl. miðlar á veraldravefnum verða notaðir. Skoðuð verður lítillega saga íslensks krosssaums og saumuð lítil mynd. Farið verður í sögu þjóðbúningsins á Íslandi. Farið verður í vettvangsferð í Þjóðminjasafnið og í Heimilisiðnaðarfélag Íslands til að skoða búninga betur og kynnast ýmiss konar handverki. Lögð er áhersla á skapandi hugsun í útfærslu og einnig vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í nokkrum prjónaaðferðum og hekli
  • ýmsum aðferðum við að ganga frá og meðhöndla handverk
  • undirbúningsvinnu fyrir ákveðin verk

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota grunnaðferðir prjóns og hekls
  • nýta sér mismunandi (hrá)efni í vinnslu ýmissa hluta
  • búa til vinnulýsingu fyrir einfaldan hlut

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta prjónað og heklað nytjahluti og listmuni
  • geta yfirfært hugmynd sína yfir í unninn hlut
  • útfæra verkefni eftir skrifaðri jafnt sem teiknaðri vinnulýsingu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is