ENSK3AF05 - Adventure & Fantasy: Wizards, Arthur’s Knights, talking cats and green giants
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemendur lesa fjölbreytta texta frá mismunandi tímum og ólíkum höfundum sem skrifa ævintýri og fantasíur á ensku. Nemendur velta fyrir sér uppruna og menningarheimi ævintýra- og fantasíubókmennta og leitast við að skoða tengsl á milli þeirra. Einnig verða ævintýra- og fantasíukvikmyndir til umfjöllunar.
Lesefni: Sir Gawain and the Green Knight, Silmarillion, Alice in Wonderland, og American Gods
Myndefni: Alice in Wonderland og American Gods.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- einkennum sagnaheims ævintýra- og fantasíubókmennta
- áhrifum skálda eins og J.R.R. Tolkien, Lewis Caroll og Neil Gaiman á fantasíubókmenntir dagsins í dag
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fjölbreyttan texta með sérhæfðum orðaforða
- horfa á kvikmyndir með gagnrýnu hugarfari
- mynda sér skoðanir á efni áfangans og geta komið þeim frá sér í ræðu og riti
- temja sér gagnrýna hugsun við lestur og áhorf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera grein fyrir viðfangsefni áfangans á fræðilegan hátt
- skrifa fræðilegar greinargerðir um efni áfangans.
Nánari upplýsingar á námskrá.is