STÆR3FD05 - Algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3VH05
Deildun falla og könnun þeirra. Markgildi, samfelldni og deildanleiki. Deildunarreglur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • meðhöndlun algengustu falla, s. s. margliða, veldis- og rótarfalla
  • lausnum jafna sérhæfðra falla, s.s. á hornafalla- og lograjöfnum
  • deildun falla, s.s. vísis- og lografalla og samsettra falla
  • hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði, o.s.frv.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • meðhöndla föll sem lýsa vísisvexti og nota logra til að leysa jöfnur og önnur viðfangsefni
  • reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða deildanlegt
  • leysa há- og lággildisverkefni og önnur klassísk verkefni sem krefjast notkunar afleiðu, s.s. í sambandi við hraða og hröðun
  • nota skilgreiningu afleiðu til að leiða út formúlur fyrir afleiður falla

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
Nánari upplýsingar á námskrá.is