ÍÞRÓ2HU01 - Hugur og heilsa

Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRÓ 1GH01, ÍÞRÓ 1GL01, ÍÞRÓ 2LC01, ÍÞRÓ2LD01
Í áfanganum er lögð áhersla á sem flesta þætti sem tengjast almennri líkams- og heilsurækt og skipulagi þjálfunar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Fjallað er um gildi hreyfingar og nemendum gerð grein fyrir mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að lifa heilbrigðu lífi og kynnast fjölbreyttum möguleikum til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Farið verður yfir fjölbreyttar þjálfunaraðferðir sem byggjast á styrktar- og þolæfingum, teygjum, öndun og slökun. Lögð er áhersla á þjálfun(arform) með eigin líkama, boltum, mótstöðuteygjum, jóga- og pilatesæfingum. Nemendur setja sér raunhæf markmið í líkams- og heilsurækt, auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif reglubundinnar hreyfingar. Nemendur vinna einstaklingsbundið í kennslustundum og stjórna viðeigandi álagi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
  • framkvæmd og útfærslu æfinga fyrir alla vöðvahópa líkamans
  • þjálfun vöðva í kjarna líkamans (stoðkerfisvöðva)
  • uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu
  • forvarnargildi almennrar heilsuræktar
  • mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
  • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja einstaklingshæfð markmið
  • æfa slökun, liðleika og teygjur
  • æfa hreyfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
  • gera styrktar- og þolæfingar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér markmiðsetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni daglegs lífs
  • nýta tækifæri til þjálfunar og nota til þess fjölbreyttar aðferðir
  • takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
  • stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is