SAGA3FE05 - Kvennasaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2MN05
Áfanginn byggir að talsverðu leyti á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda, heimildaleit, verkefnavinnu, úrvinnslu og framsetningu efnis. Til grundvallar liggja 8 efnisflokkar og miðað er við að kennari velji a.m.k. 6 efnisflokka til umfjöllunar. Þeir eru: • Kvennasaga, kynjasaga og femínísk saga. Hver er munurinn? • Hugmyndir um kosningarétt á 19. öld á Íslandi • Rauðsokkur • Kvennalistinn • Hugmyndafræði og tengsl hennar við kvennabaráttu og sögu kvenna • Konur og stjórnmál • Konur og menntun • Vald

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum þáttum úr sögu kvenna og kvennabaráttu 19. - 21. aldar
  • helstu hugtökum sem snúa að stöðu kvenna
  • mismunandi tegundum heimilda, aðferðum við heimildaleit og grunnþekkingu í heimildarýni

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja meginstrauma í rannsóknum sem varða tengsl kvenna, baráttu þeirra og stjórnmál á 19. og 20. öld
  • þekkja grundvallarhugtök og kenningar sem fram koma í fræðilegri umræðu um konur, kvennabaráttu og stjórnmál
  • þekkja til og skilja rannsóknir á sögu kvenna á Íslandi á 19. og 20. öld
  • setja stöðu kvenna og baráttu þeirra fyrir jafnrétti í sögulegt samhengi
  • skilja tengsl þekkingar, fræða og baráttu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta stöðu kynjanna í samfélaginu í dag
  • koma söguþekkingu sinni og söguskilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti
  • geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um kvennabaráttu og femínisma
  • sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart kvennabaráttu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is