Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK2ÞD05 og/eða ÞÝSK2YN03/05
Lesnir eru ýmiss konar textar, svo sem skáldsögur, smásögur, ljóð, sönglagatextar, kvikmyndir og tímarit. Nemandi vinnur sjálfstætt með textann og kynnir niðurstöður í einkaviðtali við kennara. Skilað er vinnubók sem endurspeglar vinnu nemandans yfir önnina.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða texta eins og skáldsagna, smásagna, ljóða, sönglagatexta, kvikmynda og tímarita
- þýskumælandi löndum og þjóðum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja fram lýsingu á þýsku munnlega og skriflega á viðfangsefninu hverju sinni
- taka þátt í samræðum um efnið og setja fram eigin skoðun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera þátttakandi í þýskumælandi samfélagi með yfirsýn yfir aðstæður og viðburði samfélagsins hverju sinni
- skilja ýmis blæbrigði málsins eftir aðstæðum og málsvæðum
- geta tjáð sig óundirbúið um efni á tungumálinu og lýst skoðun sinni og annarra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is