EFNA3KE02 - Aðstoð við kennslu 1. bekkjar nema á náttúruvísindabraut. framhaldsáfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3JL05
Nemendur þurfa að rifja upp efni áfangans EFNA2AM05 og þá sérstaklega það sem reyndist þeim erfitt þegar þeir tóku áfangann sjálfir. Nemendur þurfa að sýna fram á kunnáttu sína áður en farið er inn í kennsluna. Þeir fá einnig leiðsögn um það hvernig staðið er að kennslu í 1. bekk. Aðstoð við kennslu í áföngunum EFNA2AT02(haust) og EFNA2MH03(vor).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum efnafræðinnar (mól og efnajöfnur)
  • hvernig best sé að koma grunnatriðum til skila til yngri nemenda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna dæmi sem fjalla um grunnatriði efnafræðinnar og skilja lögmál sem liggja að baki
  • koma þessari þekkingu til skila til yngri nemenda á skýran hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • miðla eigin grunnkunnáttu til sér yngri nemenda
  • fá yfirsýn yfir eigin kunnáttu í grunnatriðum efnafræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is