DANS2ML03 - Málfræði og lestur

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en þeir hafa gert hingað til. Unnið er með orðaforða m.a. tengdan daglegu lífi, ferðamennsku, menntakerfi, tækni og vísindum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast danskri menningu. Í áfanganum er notast við ýmsa rauntexta auk bókmenntatexta. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • danska menningarsvæðinu
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
  • lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • rita margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
  • beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni
  • tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
  • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
  • geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
  • geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
  • tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
  • geta skrifað læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.
Nánari upplýsingar á námskrá.is