ÍÞRÓ2ÞB01 - Þrek, knattspyrna, körfubolti og aðrir boltaleikir

Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRÓ1GH01, ÍÞRÓ1GL01, ÍÞRÓ2AH01 og ÍÞRÓ2AL01
Í áfanganum er lögð áhersla á sem flesta þætti sem tengjast almennri líkams- og heilsurækt og skipulagi þjálfunar. Nemendur setja sér raunhæf markmið í líkams- og heilsurækt, auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif reglubundinnar hreyfingar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Fjallað er um gildi reglulegrar og skipulagðrar líkams- og heilsuræktar og nemendum gerð grein fyrir mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og kynnast fjölbreyttum möguleikum til líkams- og heilsuræktar innan dyra sem utan. Lagt er upp með að nemendur skipuleggi og útfæri æfingar sem hafa fjölbreytt þjálfunaráhrif. Viðfangsefni byggjast á þrekþjálfun og hópíþróttagreinum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
  • framkvæmd og útfærslu æfinga fyrir alla vöðvahópa líkamans
  • þjálfunaráhrifum hópíþróttagreina
  • þjálfun vöðva í kjarna líkamans (stoðkerfisvöðva)
  • uppbyggingu þjálfunaráætlunar og markmiðssetningu
  • forvarnargildi almennrar heilsuræktar
  • mikilvægi svefns, hvíldar og slökunar
  • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja einstaklingshæfð markmið
  • gera styrktar- og þolæfingar
  • æfa liðleika og teygjur
  • gera æfingar sem stuðla að bættri líkamsbeitingu- og stöðu
  • taka þátt í íþróttum og þjálfun með jákvæðu viðhorfi, góðri samvinnu og heiðarleika að leiðarljósi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér markmiðssetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni
  • taka þátt í leikjum og þjálfunarformum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams- og heilsuræktar
  • takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi heilbrigðan lífsstíl
  • stunda sjálfstæða líkams- og heilsurækt til framtíðar
  • bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð.
Nánari upplýsingar á námskrá.is