ÞÝSK1ÞA05 - Þýska 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Þar sem þetta er byrjunaráfangi er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, þjálfun nokkurra helstu grunnatriða málfræðinnar sem og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti þýskumælandi landa.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
  • nokkrum helstu grundvallarþáttum málkerfisins
  • þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
  • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist honum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fylla út einföld eyðublöð, skrifa póstkort o.fl.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann þekkir
  • skilja einfalt talað mál
  • skilja meginatriði einfaldra texta
  • geta metið eigið vinnuframlag og kunnáttu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is