ÞÝSK2BE05 - Berlínaráfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝS1Þ305
Í þessum áfanga undirbúa nemendur þriggja til fjögurra daga Berlínarferð. Lesnir verða textar og unnin verkefni tengd Berlín bæði fyrir ferðina, í ferðinni og eftir að heim er komið og halda nemendur meðal annars kynningar um merkisstaði borgarinnar. Hluti af vinnunni fyrir ferðina felst í upprifjun á orðaforða og málnotkun, með áherslu á dagleg samskipti en annars vinna nemendur ýmist á þýsku eða íslensku í áfanganum. Mikil áhersla er lögð á virkni nemenda í kennslustundum og gerðar eru strangar kröfur um mætingu og verkefnaskil. Í ferðinni verða heimsótt söfn og ýmsir af þekktustu stöðum borgarinnar undir leiðsögn kennara og/eða leiðsögumanns. Hámarksfjöldi nemenda í áfanganum er 24. Reynist aðsókn í áfangann umfram þann fjölda er meðal annars tekið tillit til mætingar og ástundunar nemenda í þýskunáminu í fyrri áföngum. Nemendur áfangans greiða allan kostnað við ferðina.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • staðháttum, mannlífi og menningu í Berlín
  • ólíkum textagerðum, s.s. blaðagreinum, textum á netinu, kvikmyndum og hlustunarefni
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér hagnýtra upplýsinga, taka þátt í samræðum og skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum í daglegu lífi
  • lesa margs konar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • segja frá á skýran hátt í nútíð og liðinni tíð og halda stuttar kynningar á undirbúnu efni með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
  • skrifa samfelldan texta, t.d. gera samantekt um tiltekið viðfangsefni og tjá sig um eigin upplifun og skoðanir
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn, svo sem orðabækur, við upplýsingaöflun og ritun texta

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur kynnt sér og tjá eigin skoðanir og persónulega reynslu
  • tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum og leysa úr málum sem upp geta komið
  • tileinka sér aðalatriðin í samtölum og frásögnum
  • tileinka sér efni mismunandi texta
  • geta metið eigið vinnuframlag og annarra
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til Þýskalands og þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu
Nánari upplýsingar á námskrá.is