LÖGF2LÖ05 - Lögfræði, inngangur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum verður lögfræði sem fræðigrein kynnt og fjallað um aðferðafræði og mikilvæg grundvallarhugtök lögfræðinnar. Gerð verður grein fyrir helstu réttarsviðum lögfræðinnar, þar sem einkum verður fjallað um sifja- og erfðarétt, refsirétt, skaðabótarétt, eignarrétt, kröfurétt, Evrópurétt og stjórnskipunar- og stjórnsýslurétt auk þess sem grunnreglum íslensks réttarfars verða gerð góð skil, bæði reglum einkamálaréttarfars og opinbers réttarfars. Farið er yfir lögfræðilega túlkun og skýringar á lögum og reglugerðum auk fordæmisgildis dóma með það að markmiði að nemandinn öðlist færni í því að greina réttarstöðu aðila í margvíslegum aðstæðum ólíkra réttarsviða. Áfanginn er símatsáfangi og mun námsmatið byggjast á verkefnavinnu nemenda og áfangaprófum. Kennsluhættir verða í formi fyrirlestra, verkefnavinnu, úrlausna raunhæfra verkefna og túlkunar á dómum auk þess sem gert er ráð fyrir vettvangsferðum nemenda til Alþingis og héraðsdóms Reykjavíkur. Markmið áfangans er að veita nemendum góða innsýn í aðferðafræði lögfræðinnar og er ætlað að hafa hagnýtt gildi til að veita nemendanum þá grundvallarfærni og þekkingu sem þörf er á til þess að geta túlkað og metið lög. Áfanginn er undirbúningur fyrir framhaldsnám í lögfræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum lögfræðinnar á þeim réttarsviðum sem til umfjöllunar eru
  • þeim ólíku réttarheimildum og lögskýringargögnum sem stuðst er við í íslenskum rétti
  • hlutverki og framkvæmd löggjafans við lagasetningu
  • hlutverki dómstóla við túlkun réttarheimilda
  • helstu kenningum við lögskýringar og túlkun laga
  • þeim lögum og réttarreglum sem gilda á þeim réttarsviðum sem til umfjöllunar eru

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina lögfræðileg álitaefni á þeim réttarsviðum sem til umfjöllunar eru
  • lesa lögfræðilegan texta og túlka merkingu hans
  • leita og afla sér upplýsinga í lagasafni Alþingis og reglugerðarsafni Stjórnarráðsins
  • leita og afla sér upplýsinga í þeim lögskýringargögnum sem aðgengileg eru á internetinu
  • leita og afla sér upplýsinga í dómasafni héraðsdóma og Hæstaréttar
  • beita aðferðarfræði lögfræðinnar við að slá réttarreglum föstum
  • skrifa lögfræðilegan texta sem styðst við rökstuðning réttarreglna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • túlka og skýra réttarheimildir að því marki að slá réttarreglum föstum
  • greina réttarstöðu aðila samkvæmt íslenskum rétti á ólíkum réttarsviðum
  • leysa úr lögfræðilegum álitaefnum og komast að lögfræðilegri niðurstöðu
  • semja og túlka samninga og önnur lögfræðileg skjöl á ólíkum réttarsviðum
  • taka virkan þátt í gagnrýnni umræðu um lög og lagasetningu í íslenskum rétti.
Nánari upplýsingar á námskrá.is