FÉLA2FÖ05 - Fötlun og samfélag

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLV1SJ06
Í lýsingu áfangans hefur verið notast við orðalagið „fólk með fötlun“ en hluti af námsefninu er að kynnast orðræðunni í umfjöllun um fötlun. Fjallað verður um líf, aðstæður og reynslu fólks með fötlun með áherslu á daglegt líf s.s. fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Einnig verður fjallað um ímynd og hlutverk fólks með fötlun í dægurmenningu s.s. fjölmiðlum, bókmenntum og almennri orðræðu. Mikil áhersla er lögð á að nemendur auki skilning sinn á því hvernig það er að vera fatlaður í íslensku samfélagi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeirri sögulegu þróun sem orðið hefur í málefnum fólks með fötlun
  • aðstæðum og reynslu fólks með fötlun s.s. daglegu lífi, fjölskyldulífi, menntun, atvinnu og búsetu
  • hvernig ímynd og hlutverk fólks með fötlun er í dægurmenningu s.s. fjölmiðlum, bókmenntum og í almennri orðræðu
  • hugmyndum og kenningum um fötlun

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina hvaða áhrif hugmyndir og kenningar um fötlun hafa á aðstæður fólks með fötlun
  • beita hugtökum á mismunandi viðfangsefni sem tengjast fötlun
  • beita rannsóknaraðferðum á mismunandi viðfangsefni sem tengjast fötlun
  • taka fræðilega afstöðu til samfélagslegra álitamála sem tengjast fötlun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta ákveðna tegund úrræða fyrir fólk með fötlun út frá mismunandi kenningarlegum sjónarhornum
  • geta leitað sjálfstætt eftir ákveðnum upplýsingum um málefni tengd fötlun
  • geta sett fram þekkingu sína í ræðu og riti
  • geta metið eigið vinnuframlag og annarra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is