EÐLI2GR05 - Grunnáfangi í eðlisfræði á náttúruvísindabraut.

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2LH05
Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði og ljósgeislafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: mælingar og óvissumat, líkön, fræði og lögmál, hreyfing í einni vídd, vigrar og grafísk lýsing á hreyfingu, hreyfilögmál Newtons, þyngdarkraftur og núningskraftur, tengsl vinnu og orku, nokkrar orkumyndir og varðveislulögmál tengd þeim, speglun og brot ljósgeisla, myndir í sléttum spegli, lögmál Snells, alspeglun og ljósþráðatækni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • því hvað felst í vísindalegri aðferð
  • SI-kerfinu og SI-einingum stærða sem unnið er með
  • helstu hugtökum sem notuð eru í hreyfifræði, aflfræði og ljósgeislafræði
  • helstu lögmálum ofannefndra greina, svo sem hreyfilögmálum Newtons og varðveislulögmálum vélrænnar orku og heildarorku, endurvarpslögmálinu og lögmáli Snells

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
  • beita lögmálum og jöfnum úr námsefninu við að leysa verkefni af ýmsu tagi
  • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
  • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra
  • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
  • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
  • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
  • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is