EFNA3KE02 - Aðstoð við kennslu 1. bekkjar nema á náttúruvísindabraut. framhaldsáfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3JL05
Rifjaðir verða upp þeir hlutar fyrsta áfanga (EFNA2AM05) sem ollu mestum erfiðleikum á 1. ári. Nemendur fá leiðsögn um hvernig við stöndum að kennslu 1. bekkjar. Aðstoð við kennslu í EFNA2AM05.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum efnafræðinnar (mól og efnajöfnur)
  • hvernig best sé að koma grunnatriðum til skila til yngri nemenda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna dæmi sem fjalla um grunnatriði efnafræðinnar og skilja lögmál sem liggja að baki
  • koma þessari þekkingu til skila til yngri nemenda á skýran hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • miðla eigin grunnkunnáttu til sér yngri nemenda
  • fá yfirsýn yfir eigin kunnáttu í grunnatriðum efnafræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is