Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3JL05
Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Lotukerfið og lotubundnir eiginleikar, málmar og málmleysingjar, rafefnafræði, kjarnaefnafræði. Efnafræði á háskólastigi – inntökupróf, forkröfur, námsefni og hjálp við undirbúning. Kynningar á námskeiðum og háskólum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lotukerfinu og lotubundnum eiginleikum frumefnanna
- tengslum raforku og efnafræði
- kjarnahvörfum og hvernig þau eru ólík venjulegum efnahvörfum
- kröfum sem gerðar eru í háskóla með tilliti til efnafræði og hvernig hægt er að mæta þeim
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rata um lotukerfið og geta sagt til um og útskýrt eiginleika efna eftir stöðu þeirra í lotukerfinu
- nota afoxunarspennutöflur til að finna út hvort líklegt sé að efnahvarf verði
- reikna út orku sem hægt er að fá út úr efnahvarfi út frá íspennu rafhlöðu
- sjá út möguleg kjarnahvörf út frá upplýsingum um kjarna og setja fram líkleg kjarnahvörf
- skoða og skilja til hvers er ætlast af nemanda sem hefur háskólanám í efnafræði og tengdum greinum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja háskólanám við hæfi
- aðlaga eigin námstækni að nýju námsumhverfi
- nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í umræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
- öðlast yfirsýn yfir efnafæðina sem grein
- takast á við frekara nám í efnafræði og tengdum greinum á háskólastigi
Nánari upplýsingar á námskrá.is