VEÐU2VE03 - Veður og veðurfarsfræði

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: JARÐ1FH03, grunnáfangi í efnafræði eða aðrir sambærilegir áfangar
Áfanginn er valáfangi á öllum brautum. Helstu efnisþættir eru: efna- og orkubúskapur lofthjúps jarðar, loftþrýstingur, vindar, geislun, úrkoma. Veður, veðrakerfi og veðurfar. Veðurkort og veðurspár, hæðir og lægðir. Veðurfarsleg fyrirbæri s.s. þrumur og eldingar, skýstrokkar, fellibyljir og stormar. Loftslagsbreytingar og áhrif mannsins. Loftslags- og gróðurbelti jarðar. Efnaskipti lofts og sjávar. Samspil veðrakerfa og hafstrauma. Gert er ráð fyrir að farið verði í nokkrar heimsóknir og námskynningar í stofnanir. Kennsluaðferðir miða að því að auka sjálfstæði og ábyrgð nemenda á eigin námi. Nemendur velja verkefni og vinna sjálfstætt einir eða í hóp. Verkefni miða að því að auka skilning og áhuga nemenda á umhverfi og náttúru.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • viðfangsefnum veðurfræðinnar og hagnýtingu
  • aðferðum, mælitækjum og einingum sem notuð eru í veðurfræði
  • efnasamsetningu, lagskiptingu og eðliseiginleikum lofthjúps jarðar
  • loftþrýsingi og hreyfingu loftmassa, mælingum, nýtingu og einingum
  • vindakerfi jarðar og vindafari á Íslandi
  • skýjaflokkun, skýjum í lægðum og hæðum
  • veðurkortagerð, táknum og tækjum, veðurspám
  • árstíðum, orsökum og samhengi við veðurfar
  • ýmsum veðurfarslegum fyrirbærum
  • loftslagsbeltum jarðar
  • hafstraumum
  • hringrásum efna í vistkerfum jarðar
  • loftmengun og breytingum á loftslagi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipuleggja úrlausn verklegra æfinga sem tengjast veðri og umhverfi
  • skrá skipulega mæliniðurstöður
  • greina mæliniðurstöður
  • lesa úr veðurkortum
  • greina ský og nýta skýjamyndanir til að segja til um veður

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa af mælitækjum sem notuð eru til veðurmælinga og túlka mæliniðurstöður
  • spá fyrir um veður af nokkru öryggi
  • sjá samhengi og áhrif lifnaðarhátta á loftslag
  • leggja mat á upplýsingar um veðurfyrirbæri
  • meta mögulegar veðurfarslegar ógnir
  • leggja mat á veðurfræðilegar upplýsingar sem nýtast í daglegu lífi
  • meta fjölbreytni íslensks veðurfars
Nánari upplýsingar á námskrá.is