STÆR3HT05 - Hagnýting heildareiknings, tvinntölur, 2. stigs diffurjöfnur. runur og raðir, samleitnipróf.

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3FD05
Hagnýttur heildareikningur, andhverf hornaföll. Skilgreining tvinntalna, reiknireglur sem gilda í mengi þeirra og samsvörun tvinntalna við vigra. Lausnir annars stigs jafna og margliðujafna af hærra stigi. Vísisfallið, hornaföll og pólform tvinntalna. 2. stigs deildajöfnur. Samleitniprófanir á runum og röðum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
  • deildajöfnum og sérlausn og fullnaðarlausn deildajöfnu
  • tvinntölum og tengslum tvinnfalla og raunfalla
  • hvernig nýta má tvinntölur til að þátta margliður með rauntölustuðlum
  • hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði, o.s.frv.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
  • breyta tvinntölu af rétthyrndu formi á pólform og öfugt
  • reikna með tvinntölum
  • meðhöndla runur og raðir og beita samleitniprófunum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
Nánari upplýsingar á námskrá.is