Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn er að mestu verklegur og er viðfangsefnið margir og ólíkir tjáningarmöguleikar mannsins auk tæknilegra vinnubragða við leikræna tjáningu. Í upphafi er áherslan á einstaklings- og hópæfingar til að auka slökun, skynjun, traust og einbeitingu. Farið er í framsögn og raddbeitingu og einnig er unnið með sköpun karaktera. Spuni er töluvert notaður. Nemendur vinna lokaverkefni sem þeir undirbúa í samráði við kennara og vinna síðan sjálfstætt í stærri eða smærri hópum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tjáningarmöguleikum leiklistar
- tæknilegum atriðum leikrænnar tjáningar
- karaktervinnu og undirbúningi leikrænna verkefna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna leikræn verkefni, sem einstaklingur og í hóp
- nota nauðsynleg tæknileg vinnubrögð í leikrænni tjáningu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig í leiklist
- geta notið leiklistar sem neytandi
- virkja sköpunarkraft og hugmyndaflug
Nánari upplýsingar á námskrá.is