ÞJÓÐ2ÞH05 - Þjóðhagfræði - grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum eru kynn grunnhugtök og meginviðfangsefni þjóðhagfræðinnar. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstæðir þjóðarbúsins og tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér Netið til öflunar tölulegra upplýsinga. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni sem tengjast efnahagsþróun á Íslandi í dag og taka þátt í umræðum sem tengjast hagfræði. Kennsluaðferðir miða að auknu sjálfstæði og ábyrgð nemenda á eigin námi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hagfræði sem fræðigrein, meginviðfangsefnum hennar og grundvallarspurningum
  • mismunandi hagkerfum; innviðum hagkerfa og hlutverkum þeirra
  • lögmálum markaðarins, framboði og eftirspurn, meginþáttum verðmyndunar á markaði
  • helstu aðilum og launamyndun á vinnumarkaði, umsvifum hins opinbera í efnahagslífi
  • aðilum á peningamarkaði, hlutverki seðlabanka
  • utanríkisviðskiptum, kenningum um hlutfallslega yfirburði og algjöra yfirburði
  • gengi gjaldmiðla, nafngengi og tilhögun við skráningu á gengi íslensku krónunnar
  • vandamálum í efnahagslífinu; verðbólgu, atvinnuleysi og erlendum skuldum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota framboðs- og eftirspurnarlínurit til að skoða þróun á markaði
  • reikna út þjóðhagstærðir á föstu verðlagi og hlutfallslegar breytingar á milli ára
  • reikna hagvöxt, þekkja helstu ákvörðunarþætti og vanda við mat á hagvexti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja mat á upplýsingar um efnahagsmál
  • taka þátt í daglegri efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði
  • tengja undirstöðuþekkingu í þjóðhagfræði við þróun efnahagsmála
  • afla sér frekari þekkingar um hagfræði og geta nýtt upplýsingatækni og Netið við öflun upplýsinga og lausn verkefna sem tengjast hagfræðilegum viðfangsefnum
Nánari upplýsingar á námskrá.is