ÍÞRÓ1GH01 - Grunnþættir í almennri líkams- og heilsurækt

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt með áherslu á mikilvægi upphitunar, þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. Í áfanganum er fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp og viðhalda þoli. Farið er yfir þjálfunaráhrif á loftháðu og loftfirrtu þoli ásamt uppbyggingu á almennu og sérhæfðu þoli. Fjallað er um líkamsbeitingu við styrktarþjálfun og mikilvægi styrks fyrir stoðkerfi líkamans, ásamt fjölbreyttum þjálfunaraðferðum. Lögð er áhersla á verklega og fræðilega þætti styrktarþjálfunar. Farið er yfir mikilvægi liðleika og liðleikaþjálfunar fyrir líkamann og áhrif liðleikaæfinga á vöðva og liðamót. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að meta eigin líkamsþrek. Markviss fræðsla varðandi forvarnargildi líkams- og heilsuræktar og neikvæð áhrif vímuefna á líkamann er grunnviðfangsefni í bóklegum hluta áfangans. Nemendur eru hvattir til að hlúa að andlegri, líkamlegri- og félagslegri vellíðan sinni til framtíðar. Nemendur geta valið um eftirfarandi leiðir: 1) Hefðbundin líkams- og heilsurækt (kennsla í íþróttahúsi Miðbæjarskólans og nágrenni). 2) Skipulögð íþróttaiðkun innan íþróttafélags (stunda íþróttagrein innan sérsambanda ÍSÍ, keppni á Íslandsmóti og æfa undir leiðsögn íþróttafræðings ) 3) Útivist í nánasta umhverfi: Gengið um Reykjavík og nágrenni höfuðborgarsvæðisins, nemendur þurfa að mæta á brottfarastað og sjá um kostnað af ferðum og búnaði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi upphitunar og liðleikaþjálfunar
  • styrktarþjálfun
  • fjölbreytni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
  • þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
  • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
  • neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tileinka sér fjölbreytta grunnþjálfun allra þátta
  • taka þátt í almennri og sérhæfðri upphitun
  • taka þátt í markvissri þolþjáfun og sérhæfðri þolþjálfun íþróttagreina
  • taka þátt í markvissri og fjölbreyttri styrktarþjálfun
  • taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
  • mæla þol, styrk og liðleika
  • taka þátt í hreyfingu og æfingum sem stuðla að bættri líkamsbeitingu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin heilsueflingu
  • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega þætti
  • mæla og meta eigið þol, styrk og liðleika
  • taka þátt í umræðu um ávana- og fíkniefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is