SAGA3MH05 - Menningarsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2MN05
Nútímamenning, upphaf, þróun og staða nútímamenningar, sérstaklega vestrænnar menningar. Hugtakið menning og upphaf mannsins. Upphaf menningar fornaldar, sérstaklega þeirra ríkja sem liggja nærri Miðjarðarhafi. Helstu áherslupunktar eru fyrstu menningarríkin, Mesópótamía, fornmenning Egypta, blómatímabil Forn-Grikkja, Rómaveldi, gyðingdómur, upphaf kristinnar trúar og þróun hennar. Megináherslan er þó ekki á fornaldarmenningu sem slíka, heldur á tengsl hennar við vestræna menningu í dag. Megináhersla er á nauðsynlegar forsendur borgarmenningar, s.s. lög, reglur og stjórnarfar, leturgerð og sagnfræði, reiknilist, stjörnuspeki, stærðfræði og vísindi almennt. Ólíkir þættir nútímamenningar geta verið teknir fyrir, s.s. listir almennt, leiklist, höggmyndalist, byggingarlist, málaralist, ólík fræði, s.s. raunvísindi, hugvísindi og tungumál, trúarhugmyndir og goðsögur og bókmenntaverk.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • aðgreiningu menningarhugtaksins í hlutlæga og huglæga menningu
  • aðgreiningu í leifar og frásagnir
  • helstu forsendum borgarmenningar
  • upphafi mannsins og tengsl við aðrar lífverur
  • ólíkum sviðum menningar og tengsl þeirra við upphaf sitt
  • framlagi ólíkra menningarheilda til nútímamenningar
  • menningarframlagi ólíkra menningarsvæða

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leggja gagnrýnið mat á menningarhugtakið hvað varðar svokallaða lág- og hámenningu
  • leita heimilda varðandi ólíkar menningarheildir
  • meta fjarlæg og nálæg samfélög með menningarlegum samanburði
  • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
  • meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða til skilnings á nútímasamfélagi
  • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
  • miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera saman ólíkar menningarheildir
  • yfirfæra þekkingu sína á einu sviði yfir á annað
  • meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða á hlutlægan hátt
  • geta ályktað út frá einu sviði menningar yfir á annað án þess að fá bein fyrirmæli um hvernig það skuli gert
Nánari upplýsingar á námskrá.is