STÆR3VH05 - Hornaföll, vigrar o.fl.

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2LH05
Hornafallajöfnur, hornafallaójöfnur, keilusnið, jafna hrings og sporbaugs, stikun og ofanvarp. Föll og ferlar

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldum hornafallajöfnum og ójöfnum
  • keilusniðunum, jöfnum þeirra og rúmfræðilegum eiginleikum
  • vigrum og vigurreikningi
  • föllum og helstu fallahugtökum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
  • þekkja jöfnur keilusniða
  • stika einfalda ferla og finna jöfnur þeirra
  • meðhöndla fallstæður og fallahugtök

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
Nánari upplýsingar á námskrá.is