STÆR2GN05 - Grunnáfangi á náttúruvísindabraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Mengjareikningur, 2. stigs jöfnur og fleygbogar, rökfræði og talningarfræði. Margliður og ójöfnur, veldi og rætur. Föll og gröf. Rúmfræði og hornafræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldum mengjareikningi og Vennmyndum
  • deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum
  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi
  • jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum
  • veldum, rótum og veldareglum
  • margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra
  • beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa
  • fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
  • rúmfræði í fleti og í hnitakerfi, einslögun og hornafræði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
  • meðhöndla tölur og talnamengi
  • leysa jöfnur og ójöfnur
  • beita veldareglum og meðhöndla rætur og brotna veldisvísa
  • meðhöndla föll og gröf
  • leysa rúmfræðileg vandamál

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
Nánari upplýsingar á námskrá.is