ÞÝSK1ÞB05 - Þýska 2

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1ÞA05
Haldið er áfram með kennsluefnið Lagune, 1. hefti, lesbók, vinnubók og geisladisk. Einnig er áfram stuðst við málfræðibókina Þýska fyrir þig. Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Unnið er að frekari færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Orðaforði eykst og ný málfræðiatriði eru æfð. Nemendur þurfa í auknum mæli að tjá sig munnlega og textar verða smám saman lengri og þyngri. Lesnar verða tvær stuttar sakamálasögur, önnur til munnlegs prófs en hina lesa nemendur sjálfir heima og úr henni verður prófað með krossaprófi til að kanna lesskilning. Haldið er áfram að flétta inn í kennsluna upplýsingum um staðhætti, samskiptavenjur og menningu þýskumælandi landa og þjóða.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
  • helstu grundvallarþáttum málkerfisins
  • þýskumælandi löndum, menningu þeirra, samskiptavenjum og siðum þjóðanna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og fylgja einföldum munnlegum fyrirmælum
  • lesa lengri og þyngri texta sem innihalda algengan orðaforða og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • tjá sig á einfaldan hátt um liðna atburði, eigin tilfinningar og viðhorf
  • segja einfalda sögu, lýsa liðnum atburðum, reynslu og persónum í stuttu máli með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifa stutta texta í nútíð og liðinni tíð, svo sem bréf, skilaboð, boðskort, samtöl, leiðarlýsingar o.fl.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt
  • skilja talað mál um kunnugleg efni
  • skilja meginatriði lengri og þyngri texta sem innihalda algengan orðaforða
  • geta metið eigið vinnuframlag og kunnáttu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is