Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN1FC05
Í þessum fyrsta áfanga frönskunnar á 2. þrepi er áfram unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun og orðaforði aukinn jafnt og þétt. Lokið er við yfirferð námsefnisins Latitudes 1 en mest unnið með annað efni, s.s. rauntexta af ýmsu tagi, hlustunar- og myndefni. Áfanginn er í ríkari mæli en áður þematengdur og meiri áhersla lögð á menningu og þjóðfélagsmál, einkum frá sjónarhóli ungs fólks í frönskumælandi löndum. Einnig er sjónum beint að umhverfismálum í umræddum löndum. Samhliða þessari vinnu er lesin léttlestrarbók og ýmis verkefni unnin út frá henni. Nemendur eru áfram þjálfaðir í sjálfstæðum vinnubrögðum, m.a. í ýmiss konar verkefnum í tengslum við þemu áfangans og fá meiri þjálfun í að tjá sig í ræðu og riti en rúmast hefur í fyrri áföngum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum sérhæfðum þáttum í menningu og þjóðfélagsgerð Frakklands með áherslu á líf ungs fólks þar í landi
- ólíkum viðhorfum og gildum sem ríkja í Frakklandi og öðrum frönskumælandi löndum, einkum meðal ungs fólks og geta tengt þau eigin reynslu, samfélagi og menningu
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans, þ.m.t. flóknari orðasamböndum en áður
- notkun frönskunnar til að mæta hæfniviðmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja nokkuð vel þegar rætt er um málefni daglegs lífs eða málefni sem hann þekkir vel
- greina aðalatriði í frásögn, sjónvarps- eða útvarpsefni sem fjalla um afmörkuð málefni
- skilja betur en áður orð og orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talmál
- skilja einfalda eða einfaldaða bókmenntatexta og hafa betra vald á að túlka þá en áður
- skilja stuttar greinar t.d. í tímaritum, dagblöðum og á netinu um ýmis efni með hjálp orðabóka og uppsláttarrita og skima nokkuð þunga texta sem tengjast þemum áfangans þannig að hann skilji aðalatriðin
- taka þátt í samtali um afmörkuð, undirbúin efni og geta betur en áður beitt málfari við hæfi hverju sinni
- skiptast á skoðunum við aðra um framtíðaráform, framtíðarsýn og önnur málefni sem tengjast námsefninu og geta betur en áður rökstutt mál sitt
- halda stutta og hnitmiðaða kynningu á efni sem hann hefur undirbúið fyrirfram
- skrifa texta af fjölbreyttara tagi en áður um efni sem tengist viðfangsefnum áfangans
- gera útdrátt eða eigin hugleiðingar út frá frásögn í greinum, bókmenntatextum o.fl.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, ef hann þekkir til efnisins og talað er nokkuð skýrt
- tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
- lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og eiga auðveldara en áður með að túlka hann og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
- ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
- taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
- tjá sig á nokkuð skýran hátt um ýmis almenn efni eða sérhæfðari efni sem hann hefur kynnt sér vel
- skrifa flóknari og fjölbreyttari texta en áður um ýmis efni
- skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, t.d. stuttri blaðagrein
- nýta markvissar en áður upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíð
Nánari upplýsingar á námskrá.is