FRAN1FB05 - Franska 2

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: FRAN1FA05
Áfram er unnið með kennsluefnið Latitudes 1. Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu, siðum og samskiptavenjum frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur þjálfast m.a. í tjá sig um liðna atburði, ákveða stefnumót og skilgreina tíma, skilja og semja boðskort, tjá skoðun sína á einfaldan hátt, bjarga sér í verslunum og spyrja og vísa til vegar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
  • helstu grundvallarþáttum franska málkerfisins
  • frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli, uppástungur og stuttar frásagnir
  • skilja einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð og þátíð (núliðinni tíð) og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
  • geta sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
  • skrifa stutta texta í nútíð og þátíð (núliðinni tíð), svo sem einföld persónuleg bréf, skilaboð, boðskort, leiðarlýsingar og samtöl
  • nýta sér ýmis hjálpargögn í frönskunáminu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni
  • skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða, m.a. á netinu, í blöðum og tímaritum
  • tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • skrifa einfalda texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
Nánari upplýsingar á námskrá.is