FRAN1FA05 - Franska 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn er byrjunaráfangi og er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Grunnkennsluefnið er Latitudes 1, lesbók, vinnubók og þrír geisladiskar sem gera nemendum kleift að æfa hlustun heima. Frá fyrstu kennslustund eru nemendur þjálfaðir í að hlusta á frönsku og að bera fram einföld orð og setningar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í réttum framburði og er þeim þætti sinnt bæði með hlustun og talæfingum sem og útskýringum á hljóðkerfi frönskunnar. Þá er einnig lögð mikil áhersla á skilning á mæltu máli. Fljótlega eru einföld málfræðiatriði kynnt og þjálfuð jafnt og þétt eftir því sem viðfangsefni áfangans gefa tilefni til. Nemendur rita stutta texta. Áhersla er lögð á kynningar, tjáningu á eigin smekk sem og öflun upplýsinga. Frakkland er kynnt til sögunnar ásamt öðrum frönskumælandi málsvæðum og er bætt við þá þekkingu með ítarefni, t.d. tónlist og myndefni. Einnig er fjallað lítillega um Evrópu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • nokkrum helstu grundvallarþáttum fransks málkerfis svo sem framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
  • frönskumælandi löndum, sér í lagi Frakklandi, og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp
  • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
  • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og athöfnum og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
  • geta skrifað stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fyllt út einföld eyðublöð, skrifað póstkort o.fl.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
  • beita mismunandi aðferðum til að skilja einfalda texta
  • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
  • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni
  • rita mjög einfalda texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is