ÍSLE3BS05 - Bókmenntir síðari alda

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE3BF05
Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga, bókmenntastefnur og bókmenntir síðari alda. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritgerðarsmíð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ritgerðarsmíð
  • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
  • öllum helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum síðari alda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
  • ganga frá texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
  • skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
  • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
  • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
  • lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta síðari tíma

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
  • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
  • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is