ÍSLE3BF05 - Bókmenntir fyrri alda

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2MN05
Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda; Völuspá, Hávamál, Íslendingasaga og lærdóms- og upplýsingaröld. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
  • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
  • öllum helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum fyrri alda

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
  • ganga frá heimildaritgerðum og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
  • skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
  • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
  • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
  • lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
  • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is