Vinátta - mentoverkefni er samfélagsverkefni og er eitt meginmarkmið þess að háskóla- og framhaldsskólanemendur vinni að velferð barna og öðlist víðtæka reynslu í samskiptum við börn. Áhersla er lögð á gagnkvæman ávinning og hagsmuni samfélagsins í heild af því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvers annars. Hugmyndafræði mentorverkefnisins Vináttu fellur því vel að kennslu félagsgreina í framhaldsskólum enda segir í námskrá að fleiri greinar þessu skyldar komi einnig til álita í kennslu í framhaldsskóla ef skólar leggja fram fullnægjandi áfangalýsingar og markmið fyrir slíka áfanga. Á þeim grunni var hafist handa við skipulagningu námskeiðsins mentorverkefnið Vinátta í Kvennaskólanum í Reykjavík.

Námið byggir á hugsmíðahyggju sem gerir ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í uppbyggingu þekkingar, sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námi. Námið er óhefðbundið að því leyti að nemendur vinna að mestu á „vettvangi“. Kennsla og handleiðsla kennara verður því að taka mið af reynslu nemenda. Kennari þarf í upphafi að gera sér grein fyrir stöðu nemendahópsins og miða kennslu/handleiðslu í námskeiðinu út frá þörfum þeirra.

Sem kennari veit ég að það er mjög gott að fá í hendurnar gott skipulag, hugmyndir af fyrirlestrum og verkefnum og með þá reynslu að leiðarljósi er þessi vefur unninn og fenginn til þess styrkur frá menntamálaráðuneytinu. Vefurinn er unninn með dyggri aðstoð verkefnastjórnar og þá sérstaklega Elínar Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra.  Það er von mín að kennarar og nemendur geti nýtt sér þetta efni og er öllum heimilt að nota vefinn til náms og kennslu en ekki eigna sér efnið. Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar og óskast sendar á netfangið bjorkth@kvenno.is 

Tekið saman af Björk Þorgeirsdóttur, Kvennaskólanum í Reykjavík

 

 

 

 

 


Free Hit Counter