Kvennaskólinn í Reykjavík

Kór Kvennaskólans

Kór Kvennaskólans

Kór Kvennaskólans hefur verið starfræktur um árabil. Meginmarkmiðið með kórstarfinu er að efla áhuga kórfélaga á ýmiss konar tónlist, þroska og þjálfa tilfinningu þeirra fyrir rödduðum söng og æfa þá í að koma fram við ýmis tækifæri. Kórinn heldur að jafnaði jóla- og vortónleika, fer í söngferð(ir) innan lands og/eða utan og syngur ávallt við skólaslit og stúdentsútskrift í Hallgrímskirkju. Hópurinn fer í æfingabúðir einu sinni til tvisvar á vetri og tekur þátt í kóramóti framhaldsskóla þegar það er haldið. Einnig hefur kórinn unnið með öðrum framhaldsskólakórum síðustu ár og heimsótt viðkomandi skóla. Stjórnandi kórsins er Margrét Helga Hjartardóttir.

Hér vinstra megin á síðunni eru tenglar á sýnishorn af myndum úr kórstarfinu síðastliðin ár og einnig á bloggsíðu kórsins, sem stofnuð var í febrúar 2007, þar sem hægt er að fylgjast með kórstarfinu jafnt og þétt, sjá www.korkvennaskolans.bloggar.is.



Mynd frá vortónleikum kórsins í Fríkirkjunni, 1. maí 2007.


Mynd frá tónleikum kórsins í Madrid, 6. júní 2007. Myndina tók Manuel Velasco.

 

Kórannáll skólaársins 2006-2007

Skólaárið 2006-2007 var fjölbreytt og annasamt hjá Kór Kvennaskólans. Æft var að staðaldri tvisvar í viku í tvo tíma í senn og auk þess var töluvert um aukaæfingar þegar stór verkefni stóðu fyrir dyrum. Nemendur úr öllum árgöngum tóku þátt og fékk hver nemandi 1 einingu á önn fyrir þátttökuna. Kórinn var kvennakór og var fjöldi kórfélaga í kringum 30 bæði fyrir og eftir jól sem er nokkur aukning frá síðastliðnum árum.

Kórpróf voru haldin í byrjun september og komu yfir 30 stúlkur í próf og náðu allar inngöngu í kórinn. Eldri félagar voru prófaðir í leiðinni til að kanna hvort ástæða væri til að færa þá á milli radda.
 
Fyrsta verkefni kórsins var söngur á nýnemakvöldi í Uppsölum í blábyrjun starfsárs kórsins. Í byrjun nóvember fór kórinn í æfingaferð í sumarbúðir Skálholtsstaðar frá föstudegi til sunnudags. Heppnaðist hún í alla staði vel, nýttist vel til æfinga og hópeflis. Aðaláherslan var lögð á æfingu trúarlegra verka og jólalaga en einnig nokkurra íslenskra laga.

Þann 16. nóvember, á Degi íslenskrar tungu, gekk kórinn um skólann eina kennslustund og söng þrjú rammíslensk lög og tókst sú uppákoma vel. Laugardaginn 16. desember hélt kórinn vel sótta aðventutónleika í Fríkirkjunni. Sungin voru fjölbreytt verk tengd kristinni trú og jólahátíðinni. Píanóleikari var Þórunn Þórsdóttir, fyrrverandi Kvennaskólanemi og kórfélagi. Þrír kórfélagar fluttu jólalög á fiðlu, flautu og klarínett. Eftir tónleika stóð kórinn fyrir kaffisölu í mötuneyti skólans og rann ágóði hennar í kórsjóð. Undir lok aðventu söng kórinn enn fremur jólalög í verslunum og á Laugaveginum og aflaði sér þannig frekari tekna.
 
Á haustönn hófst undirbúningur og skipulagning söngferðar til Madridar en aðalþungi þeirrar vinnu varði alla vorönnina. Ákveðið var að dvelja í Madrid frá 2. til 10. júní og byggja upp dagskrá á þeim tíma. Kristinn R. Ólafsson, menningarfulltrúi Íslenska sendiráðsins í Madrid, var kórnum mikið innan handar við alla skipulagningu ferðarinnar en einnig var Elísabet Moura, frönsku- og spænskukennari við skólann sem nú er í leyfi og búsett í Madrid, kórnum til aðstoðar.
 
Í janúar bauð Árnesingakórinn Kór Kvennaskólans að koma fram á afmælistónleikum í Íslensku Óperunni, laugardaginn 17. febrúar, ásamt tveimur öðrum gestakórum. Þar söng kórinn fjögur íslensk lög fyrir fullu húsi. Hann tók einnig þátt í samsöng allra kóranna í dagskrárlok. Var þetta skemmtileg og ómetanleg reynsla fyrir kórfélaga.

Í mars hélt kórinn 18 klukkutíma söngmaraþon í skólanum, frá klukkan 21.00 föstudaginn 16. mars til kl. 15.00 laugardaginn 17. mars. Byrjað var á allsherjaræfingu en svo sungið í minni hópum fram á morgun. Þá var aftur blásið til allsherjaræfingar og svo til raddæfinga. Nokkrir góðir gestir komu í heimsókn, þar á meðal blaða- og sjónvarpsmenn. Reyndist þetta hin besta skemmtun og drjúg æfing. Töluverð upphæð safnaðist í kórsjóð með áheitum frá fyrirtækjum, starfsfólki skólans, vinum og velunnurum kórsins.

Vortónleikar kórsins voru haldnir í Fríkirkjunni 1. maí eins og á síðasta ári. Efnisskráin samansóð fyrst og fremst af íslenskum þjóð- og sönglögum enda dagskráin sýnishorn af verkefnum Spánarferðarinnar. Eftir tónleika bauð kórinn að venju til kaffisölu í mötuneyti skólans.

Í maí æfði kórinn af kappi fyrir stúdentsútskrift og Spánarferð. Æfði hann m.a. nokkur ný verk fyrir þessi tilefni. Föstudaginn 25. maí söng kórinn fimm lög við stúdentsútskrift í Hallgrímskirkju, fjögur íslensk lög og eitt finnskt.

Starfsári kórsins lauk að þessu sinni með langþráðri söngferð til Madridar. Í ferðinni tóku þátt 27 kórfélagar, fararstjórinn Elva Björt Pálsdóttir, kennari við Kvennaskólann og Margrét Helga kórstjóri. Kórinn flaug til London laugardaginn 2. júní og svo þaðan áfram til Madridar síðar um daginn. Þar dvaldi hann á gistiheimili í hjarta borgarinnar, í göngfæri við flest kennileiti. Ýmis verkefni voru á dagskrá.

Kórinn söng tvö verk við messu í kirkjunni „San Jerónimo el Real“ strax daginn eftir komuna. Þann sama dag fór hann í afar fróðlega skoðunarferð um Madrid undir leiðsögn Kristins R. Ólafssonar.

Á mánudeginum heimsótti kórinn leikskóla í Madrid og söng þar íslensk lög fyrir börnin. Einnig las eini spænskumælandi kórfélaginn, Ester Ösp Sigurðardóttir, ævintýrið „Búkollu“ fyrir börnin í spænskri þýðingu Kristins R. Ólafssonar. Ester sá enn fremur um allar kynningar á sönguppákomum kórsins í ferðinni með glæsibrag. Um kvöldið hélt kórinn vel sótta kammertónleika í bókabúðinni og ferðaskrifstofunni „Tierra de Fuego“ og flutti þar íslensk og norræn lög við frábærar undirtektir gesta.

Á þriðjudeginum heimsótti kórinn Pradosafnið og söng svo á fallegu torgi í nágrenninu. Um kvöldið fór kórinn í Retirogarðinn og stillti sér upp fyrir framan norrænan bókabás á árlegri bókastefnu í borginni. Þar flutti hann nokkur íslensk lög og eitt lag frá hverju hinna Norðurlandanna við mjög góðar undirtektir viðstaddra. Þessa heimsókn endurtók kórinn undir lok ferðar, laugardaginn 9. júní.
 
Miðvikudaginn 6. júní heimsótti kórinn eitt af útibúum dótturfyrirtækis Landsbankans, „Kepler-Equities“, sem staðsett er í Madrid. Þar söng hann nokkur lög fyrir starfsmenn og þáði léttan hádegisverð að launum. Að kvöldi sama dags var komið að hápunkti ferðarinnar, tónleikum kórsins í kirkjunni „San Jerónimo el Real“ sem þekkt er fyrir einstakan hljómburð. Þar flutti kórinn um klukkutíma dagskrá sem samanstóð fyrst og fremst af íslenskum þjóðlögum og kórverkum frá 20. öld en einnig nokkrum norrænum þjóðlögum. Var kórnum afar vel fagnað í tónleikalok.

Á fimmtudeginum hélt kórinn upp á velgengnina með ferð í skemmtigarð rétt fyrir utan Madrid og á föstudeginum var haldið í mjög áhugaverða skoðunarferð til hinnar undurfögru borgar Toledo í nágrenni Madridar undir leiðsögn Kristins R. Ólafssonar.
 
Laugardaginn nýttu kórfélagar til að skoða Madrid betur og enduðu söngdagskrá ferðarinnar með seinni uppákomunni á bókastefnunni í Retirogarðinum.

Sunnudaginn 10. júní var haldið heim á leið með flugi til London frá Valladolid, nágrannabæ Madridar og flogið þaðan áfram heim. Voru það þreyttir en sælir söngfuglar eftir vel heppnaða og lærdómsríka ferð sem komu til Keflavíkur seint um kvöldið.
Nánar má fræðast um ferðina og starfsárið á bloggsíðu kórsins.
-MHH, júní 2007



Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli