Erlent samstarf - Skýrsla 2008-2009
Eitt af markmiðum Kvennaskólans í Reykjavík er að efla samstarf og samskipti á alþjóðavettvangi. Fjöldi erlendra gesta sækir skólann heim ár hvert bæði vegna samstarfsverkefna og til að kynnast skólastarfinu.
Á haustönn 2008 sótti hópur nemenda og kennara frá Statsskolen í Sønderborg Suður-Jótlandi Kvennaskólann heim. Tilgangur heimsóknarinnar var síðari hluti nemendaskiptaverkefnis skólanna og dvöldu Danirnir hér í viku. Nemendur unnu verkefni, fóru í skoðunarferðir og kynntu sér menningu og siði Íslendinga með því að dvelja sem gestir á heimilum nemenda í 3T. Björk Þorgeirsdóttir og Friðrik Dagur Arnarsson voru umsjónarmenn verkefnisins. Á vorönn 2009 fór hópur nemenda úr 2T tungumálabraut í heimsókn til Statsskolen ásamt kennurunum Elínborgu Ragnarsdóttur og Þórhildi Lárusdóttur. Markmið heimsóknarinnar var nemendaskipta- og samstarfsverkefni við Statsskolen. Á leiðinni til Sønderborg fór hópurinn í skoðunarferð um Kaupmannahöfn, heimsótti Amalienborgarhöll og safnið þar, Karen Blixen safnið og Louisiana listasafnið. Hópurinn dvaldi í Sønderborg í eina viku. Unnið var að verkefni til kynningar á unglingamenningu. Nemendurnir sóttu einnig tíma með gestgjöfunum og tóku þátt í félagslífi í skólanum. Nemendurnir í 2T gistu á heimilum gestgjafanna og fengu þannig tækifæri til að kynnast danskri menningu auk þess sem þau ferðuðust um nágrenni Sønderborg. Var ferðin ánægjuleg og lærdómsrík fyrir alla þátttakendur. Verkefnið var styrkt af Nordplus Junior auk þess sem nemendur borguðu sjálfir hluta af kostnaði við ferðina. Hópur nemenda frá Statsskolen í Sønderborg er væntanlegur til Íslands í byrjun haustannar 2009 til að ljúka síðari hluta samskiptaverkefnisins.
Í nóvember 2008 fóru 23 nemendur úr 3NS ásamt 3 kennurum, þeim Ásdísi Ingólfsdóttur, Elvu Björt Pálsdóttur og Friðriki Degi Arnarsyni til að taka þátt í nemendaskiptaverkefni með CIS framhaldsskólanum í Kalmar í Svíþjóð. Nemendur unnu verkefni, fóru í skoðunarferðir og tóku þátt í félagslífi gestgjafanna í Svíþjóð. Nemendur 3NS gistu á heimilum gestgjafanna í Kalmar. Í mars 2009 sóttu 19 nemendur ásamt 3 kennurum og skólastjóra CIS skólans í Kalmar Kvennaskólann heim og héldu áfram vinnu við nemendaskiptaverkefnið. Auk þess kynntu þau sér Ísland með því að fara í stuttar ferðir og taka þátt í félagslífi nemenda í Kvennaskólanum. Verkefnið var styrkt af Nordplus Junior auk þess sem nemendur borguðu sjálfir hluta af kostnaði við ferðirnar. Verkefnisstjórar voru þeir sömu og haustið 2008. Verkefnið er endurtekið annað hvert ár.
Í lok febrúar fór 21 nemandi í valáfanganum ÞÝS 473 til Berlínar ásamt kennurum sínum þeim Ástu Emilsdóttur og Guðrúnu Erlu Sigurðardóttur. Í Berlín skoðaði hópurinn helstu kennileiti borgarinnar, fór í skoðunarferð með fararstjóra og heimsótti Humboldtháskólann auk þess að skoða tvö söfn. Ferðin var í alla staði vel heppnuð.
Á næsta skólaári verður haldið áfram með verkefni sem stofnað hefur verið til við Statsskolen í Sønderborg og einnig er fyrirhuguð ferð í valáfanganum FRA 473 til Parísar í Frakkandi til kynningar á menningu þarlendra.
Eins og undanfarin ár sóttu nokkrir erlendir gestir skólann heim á síðastliðnu skólaári. Kennari í námsleyfi frá Noregi kynnti sér skólann og starfsemi hans. Auk þess komu kennaranemar m.a. frá Bretlandi, Lettlandi og Póllandi sem voru í starfsþjálfunarskiptaverkefni við HÍ í heimsókn í skólann. Nemendurnir kynntu Kvennskælingum menningu sinna landa auk þess sem þeir kynntu sér kennsluhætti í Kvennaskólanum. Skipulagðar hafa verið nokkrar slíkar heimsóknir á næsta skólaári.
Mikill áhugi er á samstarfi við Kvennaskólann í Reykjavík erlendis frá bæði til nemendaskiptaverkefna og kynningar á starfi skólans. Stefnt er að áframhaldandi samstarfi við erlenda skóla og kynnisferðum nemenda skólans erlendis í framtíðinni. Heimsóknir erlendra gesta sem kynna sín menningarsamfélög fyrir nemendum og starfsmönnum Kvennaskólans sem og námstengdar ferðir nemenda skólans auka víðsýni og umburðarlyndi þátttakenda og gerir þá hæfari til að takast á við ólíkar aðstæður í alþjóðavæddu samfélagi nútímans.
Reykjavík, í júní 2009
Umsjónarmaður alþjóðasamskipta
Þórhildur Lárusdóttir