Kvennaskólinn í Reykjavík

Bókasafn

Bókasafn


Sími: 580 7610  Fax: 552 5682 

Netfang: audur@kvenno.is

Netfang: Svanhildur@kvenno.is

Bókasafn Kvennaskólans þjónar nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.

Starfsmenn safnsins eru bókasafns-og upplýsingafræðingarnir Svanhildur Agnarsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, og Auður María Aðalsteinsdóttir

 

Bókasafnið er staðsett á fyrstu hæð í Aðalbyggingu. Þar er vinnuaðstaða fyrir 50 nemendur. Á safninu eru  tölvur ætlaðar nemendum og rúmgóð lesstofa. Panta þarf tölvurnar með góðum fyrirvara.  Um 9000 bækur, myndbönd, snældur og geisladiskar eru í eigu safnsins og 50 tímarit eru í  áskrift, en auk þess berast safninu blöð og bæklingar  án endurgjalds. Gögn á safninu eru tölvuskráð í forritinu Metrabók. Á bókasafninu eru fartölvusett sem kennarar geta pantað fyrir nemendur sína í kennslustundir. Ef fartölvurnar eru ekki pantaðar geta nemendur fengið þær að láni til notkunar á safninu. 

Opnunartími
Mánud. - fimmtud. 8:00-16:45

Föstud. 8:00 - 14:30

Útlán og skil

Nemendur og starfsfólk skólans geta fengið lánaðar bækur á safninu.  Útlánstími er  2 vikur, nema á myndböndum og geisladiskum  2 dagar.   Kennslubækur, orðabækur og handbækur merktar með rauðri doppu á kili eru eingöngu til útláns í eina kennslustund.  Bækur sem margir eru að nota í einu vegna verkefna eru ekki lánaðar út.

 

 


                      



Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli