Skólareglur
Skólasókn
Nemendur skulu sækja allar þær kennslustundir sem þeir eru skráðir í og koma stundvíslega til kennslunnar. Veikindi skal tilkynna skólanum samdægurs og staðfesta með læknisvottorði eða bréfi frá forráðamanni. Langvarandi og tíð veikindi verður að staðfesta með læknisvottorði og getur skólinn vísað slíkum málum til skólalæknis.
Ekki er hægt að fá leyfi úr kennslustundum til útréttinga, læknisferða eða erinda sem unnt er að sinna utan skólatíma.
Komi nemandi meira en 15 mínútum of seint í kennslustund fær hann fjarvist (F), annars seint (S).
Fyrir 96-100% raunskólasókn fá nemendur eina námseiningu á ári.
Fari raunskólasókn niður fyrir 90% fær nemandinn áminningu umsjónarkennara. Fari raunskólasókn niður fyrir 80% um leið og hún er undir 90% með vottorðum er litið svo á að nemandinn hafi sagt sig úr skóla. Unnt er, einu sinni á námsferlinum, að sækja um skólavist að nýju en slíkri skólavist fylgja ströng skilyrði.
Skólasókn nemanda er birt mánaðarlega yfir veturinn. Skólasókn nemenda í prósentum er birt á einkunnablöðum nemenda, bæði skólasókn í raun og að teknu tilliti til vottorða.
Námsáætlanir einstakra greina, ekki síst próflausra áfanga, geta tiltekið lágmarksskólasókn og þátttöku í verkefnum skv. samþykktum deilda/deildafunda.
Fjarvist úr kennslustund reiknast 3 stig, óháð lengd kennslustundar. Þessi stig eru lögð til grundvallar þegar fjarvistir eru reiknaðar. Komi nemandi of seint til kennslu eða fari áður en henni lýkur eru honum reiknuð fjarvistarstig.
Skólasóknarreglur eru birtar með fyrirvara um breytingar sem gerðar kunna að verða og auglýstar eru ef svo ber til.
Reykingar og vímuefni
Reykingar eru óheimilar í húsnæði og á lóð skólans. Skólanum er ekki heimilt að hafa neins konar afdrep fyrir reykingar. Einnig er öll meðferð og neysla áfengis og annarra vímuefna stranglega bönnuð í húsakynnum skólans.Forvarnarfulltrúi starfar í skólanum og vinnur að skipulagi forvarna. Á fyrsta ári er fjallað um vímuefni og fellur sú fræðsla undir lífsleikni. Þá er umfjöllun um vímuefni og áhrif þeirra hluti námsefnis í líffræði og að nokkru leyti í sálfræði og félagsfræði.
Eftirfarandi forvarnarmarkmið hafa verið sett:
1. Skólinn stefnir að því að allir nemendur hans tileinki sér vímulaust líferni og öll neysla vímuefna er óheimil í húsnæði og á lóð skólans og á öllum samkomum sem haldnar eru á einhvern hátt í nafni skólans.
2. Skólinn stefnir að því að efla sjálfsvirðingu og sjálfstæði nemenda.
3. Skólinn stefnir að því að samtvinna forvarnir sem flestum námsgreinum og koma á fræðslu í hvers konar fíknivörnum, þar með talið reykingum.
4. Skólinn stefnir að því að efla heilbrigt félagslíf og tómstundastarf í skólanum.
Agamál - framkoma - hegðun
Til þess að ná þeim markmiðum skólans að undirbúa nemendur undir að takast á við kröfur daglegs lífs, framhaldsnám og störf er nauðsynlegt að þeim sé skapað gott námsumhverfi.Skólinn lítur svo á að forsenda þess að slíkt megi takast sé að nemendur sýni hver öðrum, kennurum og öðru starfsfólki skólans fyllstu kurteisi og tillitssemi í kennslustundum sem utan þeirra. Litið er svo á að nemandi sem ekki virðir þessi tilmæli og spillir vinnufriði í kennslustundum hafi fyrirgert rétti sínum til skólavistar.
Utanlandsferðir nemenda á vegum Kvennaskólans
Erlent samstarf í sívaxandi hluti skólastarfsins. Margir nemendur Kvennaskólans eiga
þess kost að fara í námsferðir og taka á móti erlendum nemendum. Um margvísleg
verkefni er að ræða og eru mótaðar skýrar reglur um hvert verkefni fyrir sig. Hér á eftir
fara nokkrar grunnreglur sem hafðar eru til hliðsjónar fyrir utanlandsferðir hverju sinni.
1. Í utanlandsferðum á vegum Kvennaskólans er gerð sú krafa til þátttakenda að þeir
hafi a.m.k. 90% vottorðamætingu og 80% raunmætingu frá upphafi vetrar.
2. Þegar um fjöldatakmarkanir er að ræða gilda sömu reglur og í lið 1 og að þeim
uppfylltum, eru þeir nemendur valdir til fararinnar sem hafa bestu mætinguna og
hærri raunmæting látin ráða ef velja þarf á milli nemenda með sambærilega
mætingu.
3. Kennarar sem standa fyrir ákveðinni ferð geta í upphafi verkefnisins sett nánari
reglur og skilyrði fyrir þátttöku nemenda. Þessar reglur geta til dæmis fjallað um
verkefnaskil, hegðun eða aðra þá þætti sem kennaranum finnst skipta máli við val
á þátttakendum.
4. Þeir nemendur sem taka þátt þurfa að skrifa undir nemendasamning við skólann
fyrir brottför þar sem fram koma nánari reglur sem gilda í ferðinni, s.s. um
hegðun. Ef um ósjálfráða nemendur er að ræða skrifa forráðamenn einnig undir
samninginn.