Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði vegna innritunar í júní 2010.
Innritað verður á þrjár brautir; félagsvísinda-, hugvísinda- og náttúruvísindabraut.
Miðað verður við eftirfarandi einkunnamörk:
Braut
Skólaeinkunn í íslensku
Skólaeinkunn í ensku
Skólaeinkunn í stærðfræði
Félagsvísindabraut
6,0
6,0
5,0
Hugvísindabraut
6,0
6,0
5,0
Náttúruvísindabraut
6,0
5,0
6,0
Í töflunni eru þær lágmarkseinkunnir sem miðað er við inn á hverja braut. Reiknað er meðaltal þessara þriggja greina. Einnig er litið á aðrar greinar og skólasóknin skoðuð. Ef fleiri sækja um en
skólinn getur tekið getur viðmiðið orðið hærra en lágmarkið.
Skólinn veitir nemendum úr Hagaskóla, Grunnskóla Seltjarnarness, Landakotsskóla og
Tjarnarskóla forgang að 45% þeirra sæta sem innritað er í hverju sinni að uppfylltum
inntökuskilyrðunum.
Þeir sem yngri eru en 18 ára njóta forgangs fram yfir þá sem eldri eru.
Nemendur sem hætt hafa námi við skólann eða gert hlé á því njóta einnig forgangs að
lausum sætum í efri bekkjum skólans.