Námið - Nýtt
Innleiðing nýrra laga í Kvennaskólanum í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík hefur verið valinn til að vera í fararbroddi við þróun framhaldsskólakerfisins vegna innleiðingar nýrra laga um framhaldsskóla. Unnið hefur verið að endurskoðun námsframboðs skólans undanfarna mánuði og ákveðið er að nám þeirra nemenda sem byrja í skólanum haustið 2009 verði í anda þessara laga.
Til að sjá upplýsingar um nám nemenda sem innrituðust haustið 2008 og fyrr er hægt að smella hér.
Nýjar leiðir fyrir nemendur sem innritast fyrir haustið 2009
- Skólinn starfrækir þrjár bóknámsbrautir til stúdentsprófs á sviði félags-, náttúru- og hugvísinda.
- Á félagsvísindabraut er lögð áhersla á almenna þekkingu í félagsvísindum auk þess sem nemendur sérhæfa sig í tveimur sérgreinum félagsvísinda.
- Á hugvísindabraut er hægt að sérhæfa sig í tungumálum, meðal annars 3. og 4. máli eða sleppa 4. máli og leggja þess í stað áherslu á menningarlæsi og umfjöllun um listir.
- Á náttúruvísindabraut er lögð áhersla á þekkingu í stærðfræði og náttúruvísindum.
- Stúdentsprófið verður 200 framhaldsskólaeiningar (fein).
- Skólinn starfar eftir bekkjakerfi.
- Námið er skipulagt þannig að nemendur geta lokið stúdentsprófi á 3-4 árum.
- Kjarninn á hverri braut er 155 fein og valið 45 fein.
- Sveigjanlegur námshraði. Nemendum gefst kostur á að taka valgrein, eina eða fleiri, á hverju námsári. Með því móti geta duglegir nemendur lokið námi á þremur árum. Hinir sem verða lengur, sem nemur önn eða ári, geta tekið minna árlega og bætt við sig valgreinum á fjórða árinu.
Lokamarkmið náms við skólann
Lokamarkmið brauta skólans er stúdentspróf
Almenn lokamarkmið skólans eru að nemendur:
- séu undirbúnir fyrir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi
- búi yfir félagslegri og borgaralegri hæfni
- sýni frumkvæði og ábyrgð og hafi sjálfstraust
- búi yfir siðferðisvitund, víðsýni og umburðarlyndi
- hafi öðlast gagnrýna og skapandi hugsun
- geti beitt þeim vísindalegu vinnubrögðum sem kennd eru í framhaldsskóla
- geti notað þekkingu sína og færni til að vinna að margvíslegum verkefnum
- séu færir um að leita lausna í samvinnu við aðra
- hafi gott vald á upplýsingatækni
- hafi gott vald á tjáningu bæði í ræðu og riti
- kunni að njóta menningarlegra verðmæta
- hafi öðlast vitund og ábyrgð gagnvart umhverfi sínu
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám.