Kvennaskólinn í Reykjavík

Skrifstofa

Skrifstofa

Aðalskrifstofa skólans á 2. hæð að Fríkirkjuvegi 9 er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00.

Á skrifstofunni eru veittar almennar upplýsingar um skólann.
Þar eru einnig útbúin skólavistarvottorð, afrit af prófskírteinum og öðrum gögnum varðandi námið.
Skrifstofan veitir upplýsingar um viðtalstíma kennara, námsráðgjafa og stjórnenda.  Upplýsingar um þá er líka að finna á heimasíðu skólans.

Á skrifstofunni er tekið við tilkynningum um veikindi. Þangað á líka að skila læknisvottorðum og umsóknum um undanþágur eða leyfi.

Starfsfólk skrifstofu:

Vilhelmína Þ. Salbergsdóttir, skrifstofustjóri
Svala Árnadóttir, fulltrúi í Aðalbyggingu
Aðalheiður Vigfúsdóttir, fulltrúi í Aðalbyggingu

Heimilisfang:
Kvennaskólinn í Reykjavík, Fríkirkjuvegi 9, 101 Reykjavík.
Sími 580-7600
Bréfsími 552-5682

 



Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli