Kvennaskólinn í Reykjavík

Erlent samstarf

Skýrsla um erlent samstarf 2009 - 2010

 

Samstarf og samskipti á alþjóðavettvangi hefur verið í nokkuð föstum skorðum í Kvennaskól- anum í Reykjavík í þó nokkur ár. Lengst af undir stjórn Þórhildar Lárusdóttur sem lét af starfi umsjónarmanns erlendra samskipta haustið 2009. Nýr umsjónarmaður erlendra samskipta er Ásdís Ingólfsdóttir.

Árlega berast skólanum fjölmargar og margvíslegar beiðnir um samstarf. Ekki er mögulegt að verða við þeim öllum en reynt er að svara þessum erindum og leita leiða til að verða við beiðnum erlendis frá um samstarf og heimsóknir eða greiða götu þeirra sem hingað leita á annan hátt. Fjöldi erlendra gesta sækir skólann heim ár hvert bæði vegna samstarfsverkefna og til að kynnast skólastarfinu.

Verkefni tengd erlendum samskiptum eru af ýmsum toga. Helst eru:

1. Nemendaskiptaverkefni Kvennaskólans og skóla erlendis

2. Áfangar þar sem hluti námsins er borgarferð.

3. Heimsóknir kennara erlendis frá til að skoða skólann.

4. Tölvusamskipti m.a. vegna fyrirhugaðs samstarfs við íslenska skóla.

5. Endurmenntun kennara á eigin vegum

1. Nemendaskipti

Skólaárið 2009-2010 var í gangi samstarf við Statsskolen í Sønderborg á Suður-Jótlandi. Dagana 21. – 25. september 2009 sótti hópur nemenda og kennara frá Statsskolen Kvennaskólann heim. Tilgangur heimsóknarinnar var síðari hluti nemendaskiptaverkefnis skólanna en nemendur úr 2T höfðu sótt danina heim á vorönn 2009. Nemendur unnu verkefni, fóru í skoðunarferðir og kynntu sér menningu og siði Íslendinga með því að dvelja sem gestir á heimilum nemenda í 3T. Umsjón með þessu verkefni höfðu Elínborg Ragnarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir.

Á vorönn 2010 fór af stað nýtt samstarfsverkefni við Statsskolen en þá fór 43 manna hópur nemenda úr 2T og 1H í heimsókn til Danmerkur ásamt kennurunum Erlu Elínu Hansdóttur, Ásdísi Ingólfsdóttur og Hauki Svavarssyni. Auk þess sem Sigurður G. Þorsteinsson fjármálastjóri var með í för. Á leiðinni til Sønderborg fór hópurinn í skoðunarferð um Kaupmannahöfn, heimsótti Amalienborgarhöll, Karen Blixen safnið og Louisiana listasafnið.

Hópurinn dvaldi í Sønderborg í eina viku. Unnið var að verkefnum tengdum tungumálum og menningu í víðustu merkingu. Fjallað var um norrænna goðafræði, kvikmyndir danskar og íslenskar, íslensk náttúra var kynnt á dönsku, farið var í skoðanaferðir í endurvinnslustöð þar sem framleitt er rafmagn úr sorpi og gerð var verkleg æfing þar sem sólarljós var nýtt til að hita vatn. Nemendurnir sóttu einnig tíma með gestgjöfunum og tóku þátt í hópstarfi og félagslífi í skólanum.

Nemendurnir í 2T og 1H gistu á heimilum gestgjafanna og fengu þannig tækifæri til að kynnast danskri menningu auk þess sem þau ferðuðust um nágrenni Sønderborgar og fóru til Flensborgar í Þýskalandi. Var ferðin ánægjuleg og lærdómsrík fyrir alla þátttakendur. Verkefnið var styrkt af Nordplus - Kultur og Sprog, auk þess sem nemendur borguðu sjálfir hluta af kostnaði við ferðina. Í framhaldi af þessari heimsókn er fyrirhuguð er heimsókn bekkjar frá Statsskolen á næsta skólaári.

2. Áfangar með borgarferð

Nemendur í valáfanganum FRA 473 fóru til Parísar í Frakkandi til kynningar á menningu þarlendra ásamt Jóhönnu Björk Guðjónsdóttur og Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur frönskukennurum. Í París skoðaði hópurinn helstu kennileiti borgarinnar, fór í skoðunarferð undir leiðsögn Parísardömunnar og heimsótti söfn. Ferðin var í alla staði fróðleg og vel heppnuð.

Áfram mun verða boðið uppá áfanga með Parísarferð og Berlínarferð eins og verið hefur um nokkurt skeið en auk þess eru í bígerð nýir valáfangar þar sem borgarferð er hluti af námsefni, m.a. verður farið til Edinborgar næsta ár.

3. Heimsóknir kennara og nemenda

Eins og undanfarin ár sóttu nokkrir erlendir gestir skólann heim á síðastliðnu skólaári. Kennari frá Hollandi kom hér í september með hóp nemenda sem lagði fyrir könnun með nemenda Kvennaskólans þar sem m.a. var spurt um áhyggjur þeirra af eldgosum og jarðskjálftum. Þessi kennari hefur beðið um að fá að koma aftur í stutta heimsókn á næsta skólaári og boðist til að taka þátt í hvers kyns samstarfi við skólann.

Í september komu tveir kennarar frá Lettlandi og dvöldu í hálfan mánuð. Þeim var kynntur skólinn og tilhögun náms í framhaldskólastigi á Íslandi. Þær sátu kennslustundir í ýmsum kennslugreinum auk þess sem haft var samband við grunnskóla í borginni vegna kynninga. Þeir kynntu nemendum í 1. bekk menningu Lettlands. Margir kennarar skólans komu að móttöku lettnesku kennaranna tveggja sem þeim þótti takast sérlega vel. Ferðin var styrkt af Evrópu- sambandinu.

Skipulagðar hafa verið nokkrar slíkar heimsóknir á næsta skólaári.

4. Tölvusamskipti og endurmenntun kennara á eigin vegum

Á annan tug fyrirspurna frá yfir tíu löndum bárust skólanum um verkefni af ýmsu tagi s.s. heimsóknir, námskeiðstilboð fyrir kennara og nemendaskiptaverkefni. Auk þess sem fjöldi auglýsinga berast frá alþjóðaskrifstofu og aðilum erlendis sem halda námskeið fyrir kennara. Erindi sem berast í tölvupósti eru ýmist send á kennara í einstaka kennslugreinum eftir því sem við á vegna fyrirspurnar eða þeim er svarað af umsjónarmanni. Dæmi um þau lönd og erindi sem berast er að finna í töflu hér að neðan:

Land

Dæmi um verkefni - erindi

Holland

Heimsókn og skólakynning með nemendur

Svíþjóð

Nemendaskiptaverkefni, Nordplus endurnýjun umsóknar 2010-11 og nýtt verkefni. Nemendaskipti, Nordplus/Comenius.

Belgía

Skólastjórnun, Comenius. 10 ára afmælisfundur

Ítalía

Nemendaskipti, Comenius. Endurnýja samstarf

Tékkland

Fyrirspurn vegna Gruntvigs-námskeiðs hér á landi.

Kennaraskipti

Litháen

Nemendaskiptaverkefni, Nordplus.

England, Wales

Nemendaskiptaverkefni, Comenius.

Tilboð um endurmenntunarnámskeið fyrir kennara

Lettland

Nemendaskiptaverkefni, Nordplus.

Aðstoðarkennsla í ensku.

Frakkland

Nemendaskiptaverkefni, Comenius.

Þrír aðilar sem hafa verið í samstarfi sendu fyrirspurn varðandi endurnýjun. Frá Sikiley, Belgíu og Noregi. Fyrirhugað er að hafa fund vegna eins þessara verkefna, sótt verður um undirbúnings-heimsókn til Noregs á næsta ári vegna þessa og leitað verður leiða til að hefja nýtt samstarf við Sikiley.

Tveir kennarar skólans höfðu áhuga á að kynna sér e-twinning verkefni og koma slíku í gang en mikil aðsókn var að kynningarnámskeiði og fengu þeir ekki inni. Reynt verður að koma slíku á á næsta ári. Nokkrir kennarar sóttu um Comeniusar-styrki til að sækja endurmenntunarnámskeið og fengu flestir styrki hvort heldur var til að sækja sumarnámskeið eða lengri námsskeið næsta vetur. Umsjónarmaður sótti hálfs dags kynningarfund á vegum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins um breytingar sem verið er að gera á Nordplus styrkjakerfinu.

Stefnt er að áframhaldandi samstarfi við erlenda skóla og kynnisferðum nemenda skólans erlendis í framtíðinni. Heimsóknir erlendra gesta sem kynna sín menningarsamfélög fyrir nemendum og starfsmönnum Kvennaskólans sem og námstengdar ferðir nemenda skólans auka víðsýni og umburðarlyndi þátttakenda og gerir þá hæfari til að takast á við ólíkar aðstæður í alþjóðavæddu samfélagi nútímans.

Reykjavík, í júní 2010

Umsjónarmaður alþjóðasamskipta

Ásdís Ingólfsdóttir



Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli