Bragðlaukurinn
Kokkabókin hennar Grétu

bar08.gif (6399 bytes)

Það skemmtilegasta sem ég geri er að elda mat og njóta hans með góðum vinum.  Hér eru  nokkrar uppskriftir sem eru í uppáhaldi hjá mér, ef þið viljið prófa.    Þær eru margar komnar langt að en eiga það sameiginlegt að vera algjörlega ómótstæðilegar og sumar hverjar öðruvísi en allt annað. 
i_banana.gif (958 bytes)    er eftirmatur eða kökur
i_fish1.gif (988 bytes) er fiskur
chili.gif (1034 bytes) er grænmeti og pasta
i_cloud.gif (954 bytes)  er kjöt
i_nut.gif (1007 bytes)   er brauð      

bar08.gif (6399 bytes)


 

 

Innihald:

i_cloud.gif (954 bytes)
Einstök kúrekauppskrift frá Dave
i_fish1.gif (988 bytes)
Maríneraður fiskur frá Ecuador
chili.gif (1034 bytes)
Kartöflu pönnkökur
i_nut.gif (1007 bytes) Húsavíkurrúgbrauð Helgu
i_fish1.gif (988 bytes) Saltfiskur á spánska vísu
i_cloud.gif (954 bytes) Tailenskur kjúklingur
chili.gif (1034 bytes) Den danske Karolines Paprikusúpa
chili.gif (1034 bytes) Hvítlaukssveppirnir mínir
chili.gif (1034 bytes) Ætiþistlaídýfa frá Jeff og Pat
i_cloud.gif (954 bytes) Kjúlli
chili.gif (1034 bytes) Kartöflu og ólífusalat
chili.gif (1034 bytes) Hirsibaka
chili.gif (1034 bytes) Pastað!
i_fish1.gif (988 bytes) Uppsalasúpa
i_banana.gif (958 bytes) Pavlova
chili.gif (1034 bytes) Spínatídýfa nýtt
chili.gif (1034 bytes) Rauðrófubaka Kolbrúnar nýtt


bar08.gif (6399 bytes)

i_cloud.gif (954 bytes)ROCKY MOUNTAIN OYSTERS
uppskrift frá kúrekanum í Salt Lake; Dave Stanley smile.gif (906 bytes)
Here's a recipe for you, very simple.   Since we've been talking about cowboys, I thought I'd include it. In early summer, cowboys have round-up, when young calves are innoculated against disease, branded with a hot iron, and castrated. The testicles left over after the castration are a cowboy treat which they call "Rocky Mountain Oysters." East of the Rockies they're called "Prairie Oysters."

calf testicles
crackers (preferably boring white American crackers like Saltines)
salt and pepper
bacon grease

Soak testicles in salty water for an hour. Crush crackers with a rolling pin or spoon. Add salt and pepper to the crackers. Roll the testicles in the crackers and fry in hot bacon fat until brown.

 

bar08.gif (6399 bytes)

i_fish1.gif (988 bytes)MARÍNERAÐUR FISKUR
fyrir 4-5 í forrétt

Hráefni
1 kg ferskur fiskur (ýsa, lúða, búri, steinbítur…)

6-8 sítrónur
1 msk ólífuolía
1 laukur (eða púrra, vorlaukur, rauðlaukur – eftir smekk hvers og eins)

nokkur rif af hvítlauk – má sleppa. 
Rauð eða gul paprika, steinselja eða eitthvað fallegt og litríkt til skrauts

Aðferð
Sólarhring áður en bera á fiskinn fram þarf að leggja hann í lög.  Fiskurinn er beinhreinsaður, roðflettur og snyrtur í bak og fyrir.  Skorinn í netta bita.  Laukurinn saxaður smátt og ef þú notar hvítlauk saxaðu hann frekar en að setja í gegnum hvítlaukspressu.   Safa úr sítrónunum ásamt olíunni hellt yfir.  Látið standa í ísskáp í sólarhring.  Stuttu fyrir framreiðslu er fiskurinn veiddur upp úr leginum og papriku eða steinselju stráð yfir til skrauts. Fiskurinn er borinn fram með sósu og heimabökuðu brauði.

Sæt sósa:
1 dós sýrður rjómi
3 matskeiðar majones (allra helst heimatilbúið úr eggjarauðum og góðri olíu)
sinnep (sætt sinnep og Dijon), púðursykur, hunang og dill eftir smekk hvers og eins

 

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)BULVINIAI BLYNAI - KARTÖFLU PÖNNUKÖKUR
frá Margarita í Litháen

You need:
2 kg potatoes
1-2 eggs
salt, oil
100 g smoked fat (bacon, only the fat of it)
0,5-1 glas milk

To make:  
Peel and grate the raw potatoes.  Add eggs, chopped plus fried fat, boil the milk and pour it into the mixture.  Mix well.  The consistency must be like for any pancakes.  If too liquid, you may add some flour.  Heat some oil in a frying pan.  You can make 4 pancakes in a pan at once.  One spoonful of mixture = 1 pancake.  When yellow-brownish and crispy, turn them over.

To eat:

with sour cream, can add fried chopped smoket fat.  Some “fanatics” eat these pancakes with rasperry jam, even.

bar08.gif (6399 bytes)

i_nut.gif (1007 bytes)HÚSAVÍKURRÚGBRAUÐ frá Helgu


1 lítri volgt vatn
4 1/2 msk ger
400 g sykur
660 g soðnar og maukaðar kartöflur
1 kg rúgmjöl
1/2 kg heilhveiti
1 msk salt

Allt blandað saman.   Látið í stóra "Makkintos" dós og bakað yfir nótt við u.þ.b. 100° C í 10-12 tíma eða sjóða í mjólkurfernum sem settar eru í stóran pott yfir nótt á lægsta hita eftir að suða er komin upp.   Best er að skera brauðið daginn eftir bakstur.

bar08.gif (6399 bytes)

i_fish1.gif (988 bytes)SALTFISKUR FRÁ SPÁNI

1 kg af vel hreinsuðum saltfiskbitum (kinnar eru bestar)
1/2 peli óþeyttur rjómi
1sítróna (safinn)
ólífuolía
pipar
estragon
ólífur
kapers
hvítlaukur
300 g sterkur ostur

Saltfiskurinn er settur í eldfast mót.  Ólífuolía og sítrónusafi sett yfir ásamt ólífum og kapers og kryddi.   Sterkur rifinn ostur settur ofan á og rjóminn allra síðast .   Bakað í ofni við 200° í u.þ.b. 20 mínútur.  Borið fram með alfa alfa spírum, hrísgrjónum, salati og hrísgrjónum (basmati).


bar08.gif (6399 bytes)

i_cloud.gif (954 bytes)TAILENSKUR KJÚKLINGUR

beinhreinsað kjúklingakjöt
2-4 msk green curry paste (fæst hjá Nings)
1 dós kókosmjólk
2 msk sojasósa
2 msk púðursykur
hvítlaukur 1/2 - 1 laukur
grænmeti (zuccini, sveppir, blómkal, snjóbaunir eftir smekk)

Kjúklingurinn er skorinn í bita og léttsteiktur á pönnu úr olíu.   Curry paste sett út á ásamt hvítlauk.  þá sojasósa og púðursykur.    Að lokum er grænmetið sett út í í bitum.  Að síðustu er kókosmjólkinni hellt út á.  Ath. að láta grænmetið ekki malla of lengi.   Það á að vera aðeins hart undir tönn.  Borið fram með salati úr lauk, tómötum og gúrku í bitum sem blandað er saman við hreina jógúrta.   Hrísgrjón og e.t.v. brauð.


bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)DANSKE KAROLINES PAPRIKUSÚPA

25 g smjör
1-2 laukar eða púrrur ca. 150 g
2 rauðar papikur
1 1/2 lítri kjúklingasoð
1-2 msk sæt chilli sósa
1/2 tsk paprikuduft
150 g rjómaostur
1 dós niðursoðnir tómatar
1/2 tsk gróft salt
pipar
200 g kjúklingabringur í bitum

Bræða smjör og svissa lauk og papriku.   Setja kjúklingasoð út í og láta sjóða.  Bæta í chillisósu, papriku og rjómaosti.  Láta sjóða, malla þar til osturinn er bráðnaður.  Bæta tómötum, salti og pipar út í og sjóða í 2 mínútur.  Borið fram með heimabökuðu brauði og salati.


bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)HVÍTLAUKSSVEPPIRNIR MÍNIR

1 stór sveppir eða 3 litlir á mann
að auki nokkrir sveppir til að skera niður í fyllingu
smjör
hvítlaukur
ostur - beikon

Stafirnir af sveppunum skornir af og ofan í hattinn.  Nokkrir sveppir brytjaðir aukalega.  Þetta er léttsteikt á pönnu í slatta af smjöri og miklum hvítlauk (a.m.k. einn heill).  Saltað og piprað í lokin.  Hattar sveppanna eru léttsteiktir á pönnunni.  Fylltir með sveppa-hvítlauksmaukinu og biti af brie eða beikoni sett ofan á.  Bakað í ofni við 200 °C þar til ostur er bráðnaður eða beikon orðið stökkt.  Borið fram með ristuðu brauði, salati eða Couscous.


bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)ÆTIÞISTLAÍDÝFA FRÁ JEFF OG PAT

3/4 bolli majones
3/4 bolli parmesan ostur rifinn
1 dós af ætiþistlum
1 teskeið sítrónusafi
1-2 hvítlauksrif

Sameina öll hráefni í skál nema ætiþistlarnir sem eru settir út í síðast í smáum bitum.  Hitið í örbylgjuofni í u.þ.b. 3 mínútur og berið helst fram með nýbökuðu nan brauði eða venjulegu saltkexi.


bar08.gif (6399 bytes)

i_cloud.gif (954 bytes)KJÚLLI
með sultu, soja og barbeque sósu - úr Gestgjafanum
fyrir 4

1 kjúklingur í bitum (takið skinnið af)
50 g smjör
2dl barbeque sósa
1 dl sojasósa
1 dl apríkósusulta
100 g púðursykur (0,8 dl)

Setjið kjúklingabitana í pott og hellið sósunni yfir sem er fyrst hituð saman í potti.  Bakið í ofni við 190°C í u.þ.b. 50 mínútur

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)KARTÖFLU OG ÓLÍFUSALAT
fyrir 4 sem forréttur eða smáréttur

2 msk ólífuolía
1 1/2 msk sítrónusafi
4-6 hvítlauksrif, söxuð smátt
100 g grænar hvítlauksólífur
1/2 kg kaldar flysjaðar kartöflur skornar í teninga
kryddjurtir eftir smekk en ferskt basilikum er ómissandi
salt og nýmalaður svartur pipar

Kartöflur og ólífur settar á fat.  Sítrónusafa og ólíu með hvítlauknum hellt yfir, malaður pipar og kryddjurtir síðast.  Borið fram með brauði og góðri rauðri pestósósu.

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)HIRSIBAKA

2 dl hirsi
2 dl rauðlaukur
2 dl spergilkál
2 dl yam (sætar kartöflur)
2 dl sólblómafræ eða furuhnetur
1 tsk salt
1 msk basilikum
6 dl  grænmetissoð

Hirsið er sett neðst í ofnfast mót.  Laukurinn settur yfir, svo spergilkálið og yamið. Blanda saman soði og kryddi og hellt yfir.  Að síðustu er hnetunum eða sólblómafræunum stráð yfir.  Bakað við 250°C í 25 mínútur.  Gott með öllum mat eða eitt og sér með brauði og hvítlaukssósu.

Hvítlaukssósa:
1 dós sýrður rjómi
3 matskeiðar majones (allra helst heimatilbúið úr eggjarauðum og góðri olíu)
2-3 rif af hvítlauk (má vera meira)
nokkrir dropar sítrónusafi
3-4 msk graslaukur ferskur klipptur niður

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)PASTAÐ!
fyrir 4
Þetta er allra besta pasta sem ég hef bragðað. 
Að vísu tekur smá tíma að útbúa sósuna en hana má hins vegar útbúa fyrirfram og eiga í frystinum.  

Sósa (2 bollar):
1/2-1 hvítlaukur, saxaður
1 1/2 paprika
1/2 bolli niðursoðin rauð paprika
1 bolli niðursoðinn græn chili eða jalapeno pipar (mildur)
1 ferskur chili eða jalapeno pipar
1/2 bolli ólífuolía
1 teningur fiskikraftur
1 teningur kjúklingakraftur
1/2 bolli ísmolar

Saxið smátt hvítlauk, papriku og chili pipar.  Setjið í matvinnsluvél og blandið vel.  Leysið upp teningana í 1/4 bolla sjóðandi vatni.   Hellið svo yfir ísmolana.  Blandið soðkraftinum saman við grænmetið og sósan er tilbúin.

1/2 kíló risarækjur
4 matskeiðar smjör
2 grænar paprikur saxaðar
2 bollar niðursneiddir sveppir
1-1 1/2 bolli af sósunni (sjá að ofan)
1 bolli hvítvín
1 - 1 1/2 pakki af pasta að eigin vali  (soðið "al dente")
4-6 matskeiðar ferskur parmesan ostur rifinn nokkuð gróft
salt og pipar
1 dós af ætiþistlum, skornir til helminga

Bræðið smjör og steikið sveppina og paprikuna þar til mýkist.   Bætið rækjum út í og hrærið í á meðan þar til gegnheitar (ca. 2 mínútur).  Setjið sósuna út á og hvítvínið.  Látið sjóða aðeins niður ef sósan er of þunn.  Blandið soðnu pasta út í og ætiþistlunum.   Hrærið í á pönnunni í 2 mínútur.   Rífið parmesan ostinn út á.  Borið fram strax.

 

bar08.gif (6399 bytes)

i_fish1.gif (988 bytes)UPPSALASÚPAchili.gif (1034 bytes)
fyrir 6

1/2 dós Tomato puree frá Hunts
2 dósir Hunts Garlic and Herbs tómatsósa
3 dósir vatn (þ.e. dósirnar af tómötunum notaðar til að mæla)
Tabasco sósa slatti
1 peli rjómi
2 kjúklingateningar
chilli pipar
1 væn msk púðursykur
1 bolli saxaður laukur
1 bolli saxaðar gulrætur
1 bolli saxað sellerí
1 bolli söxuð paprika
1/2-1 hvítlaukur skorinn í litla bita
250 grömm skelfiskur

Grænmetið er mýkt í ólívuolíu í potti.   Tómatdósirnar og vatnið sett út í.  Síðan rjómi og krydd.   Látið malla í 30 mínútur.  Rækjur settar út í rétt áður en borið er fram.  Borið fram með heimabökuðu brauði.

bar08.gif (6399 bytes)

i_banana.gif (958 bytes)PAVLOVA
fyrir 6
einfaldur eftirréttur

6 eggjahvítur
300 gr sykur
1 tsk lyftiduft
þeytt saman og bakað neðarlega í ofni í 45 mínútur við 175° í ofnföstu móti.   Þegar marengsbotninn hefur kólnað er 1 1/2 peli af þeyttum rjóma settur ofan á.   Jarðaber, kíví, vínber og melónur skorið í bita og sett ofan á rjómann.

 

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)SPÍNATÍDÝFA

1 pk frosið spínat
2 pk grænmetissúpuduft
1 1/2 bolli sýrður rjómi
1 bolli majónes
ca. 4 msk blaðlaukur
Kreista vökvann úr spínatinu og skera það niður.  Saxa laukinn.    Sýrður rjómi og majónes blandað vel og öllu hrært saman.  Má krydda eftir smekk með salti, sítrónupipar og/eða aromat.  Láta standa í 2 klst í ísskáp.  Borið fram með brauði (eða sett ofan í kringlótt brauð sem hefur verið "hreinsað" að innan.

bar08.gif (6399 bytes)

chili.gif (1034 bytes)RAUÐRÓFUBAKA KOLBRÚNAR

botn:
4 dl hveiti
1 1/2 dl vatn
15 g ger
1 tsk salt
1 tsk basilikum
2 msk olía

uppbökuð tómatsósa:
1 msk hveiti
50 g smjör
1 tsk grænmetiskraftur
2 1/2 dl vatn
3 tsk tómatpurre

ofan á:
150 g ostur
2 niðursneiddir tómatar

fylling:
tæplega 1 púrra (150 g) - sneidd
1 rauðrófa (150 g) - soðin í ca. klukkustund og rifin niður.

Gerdeig sett í ofnfast mót (hátt) í botn og upp á hliðar eftir að hafa hefast í nokkra stund.  Fylling sett saman við tómatsósuna og sett ofan í.  Ostur og tómatsneiðar efst.  Bakað í 30 mín. við 200°C

bar08.gif (6399 bytes)



Áttu góða uppskrift sem ég má prófa?
gretabg@ismennt.is
til baka á heimasíðu Grétu